Brotin geti haft mikið að segja um orðspor Íslandsbanka
![Í sáttinni eru talin upp fjölmörg atriði þar sem bankinn er talinn hafa brotið lög og innri reglur sínar við framkvæmd útboðsins.](https://www.visir.is/i/C9A2345CAB454C6335AEB9A23EED700AC9AFB4BB11313252BA74C6251E4B3FD5_713x0.jpg)
Það að Íslandsbanki hafi hvorki greint hagsmunaárekstra með fullnægjandi hætti né tryggt að þeir sköðuðu ekki hagsmuni viðskiptavina þegar bankinn seldi hluti í sjálfum sér er ein af stærstu orðsporsáhættum bankans í sáttinni við fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Þetta segir Andri Fannar Bergþórsson, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, lögmaður hjá Advel lögmönnum og fyrrverandi nefndarmaður í fjármálaeftirlitsnefnd.