Erlent

Chow kjörinn borgar­stjóri úr hópi 102 fram­bjóð­enda

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Chow tók þátt í gleðigöngu Toronto-borgar á sunnudag.
Chow tók þátt í gleðigöngu Toronto-borgar á sunnudag. AP/Chris Young

Olivia Chow, róttækur vinstrimaður, hefur verið kjörin borgarstjóri Toronto í Kanada. Chow lagði 101 andstæðing í sögulegum kosningum en hundur var meðal frambjóðenda.

Boðað var til kosninganna eftir að borgarstjórinn John Tory, 68 ára, sagði af sér í kjölfar umfjöllunar Toronto Star um að Tory hefði átt í ástarsambandi við 31 árs lærling í miðjum Covid-faraldri.

Þegar upp komst um sambandið voru aðeins nokkrir mánuðir síðan Tory tryggði sér þriðja kjörtímabilið í borgarstjórasætinu með yfir 60 prósent atkvæða.

Toronto er fjölmennasta borg Kanada og það stóð ekki á borgarbúum að bjóðast til að taka við stjórnartaumunum. Skilyrðin sem þarf að uppfylla eru hvorki mörg né ströng; 25 undirskriftir og 25 þúsund krónu þátttökugjald.

Á endanum rötuðu 102 nöfn á kjörseðilinn, meðal annars nafn Toby Heaps, hvers helsta baráttumál var að draga úr saltnotkun á götum á veturna. Sagði hann saltið sært þófa hunda á borð við tíkina Molly, sem hann sagðist myndu gera að heiðursborgarstjóra ef þau ynnu.

„Ég held að borgarráð tæki betri ákvarðanir ef það væri dýr í salnum,“ sagði Heaps í samtali við BBC.

Molly varð hins vegar að lúta í lægra haldi fyrir Chow, sem þarf nú að takast á við svipuð vandamál og plaga Íslendinga. Hefur hún heitið því að byggja meira ódýrt húsnæði og auka stuðning við leigjendur. Þá segist hún vilja skapa öruggara og umhyggjusamara samfélag.

Chow gæti átt á brattan að sækja þar sem ríkisstjóri Ontario, Doug Ford, sagði á meðan kosningabaráttunni stóð að kjör Chow yrði „algjör hörmung“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×