Lífið

Scher­zin­ger trú­lofast ruðning­s­kappanum

Atli Ísleifsson skrifar
Nicole Scherzinger hefur á síðustu árum gert garðinn frægan sem dómari í þáttunum X Factor.
Nicole Scherzinger hefur á síðustu árum gert garðinn frægan sem dómari í þáttunum X Factor. EPA

Bandaríska söngkonan og raunveruleikaþáttadómarinn Nicole Scherzinger hefur trúlofast kærasta sínum, ruðningskappanum fyrrverandi, Thom Evans.

Scherzinger staðfestir þetta á Instagram-síðu sinni þar sem hún birtist mynd af Evans þar sem hann fer á hné og beinir til hennar trúlofunarhring. „Ég sagði já,“ fylgir myndinni ásamt tjámynd af trúlofunarhring og svörtu hjarta.

Scherzinger er þekkt fyrir að hafa vera söngkona í sveitinni Pussycat Dolls, en liðskonur sveitarinnar héldu hver í sína áttina árið 2019 til að einbeita sér að sólóferlum. Sveitin kom aftur saman árið 2019 þegar þær sungu saman í X Factor þætti þar sem Scherzinger hefur verið meðal dómara.

Hin 44 ára Scherzinger og hinn 38 ára Evans hafa verið saman frá árinu 2019 og hafa reglulega birt myndir hvort af öðru á samfélagsmiðlum á síðustu árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.