Viðskipti innlent

Er­ling lætur af störfum hjá Ljós­leiðaranum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Erling Freyr Guðmundsson hættir sem framkvæmdastjóri Ljósleiðarans.
Erling Freyr Guðmundsson hættir sem framkvæmdastjóri Ljósleiðarans. Ljósleiðarinn

Er­ling Freyr Guð­munds­son fram­kvæmda­stjóri Ljós­leiðarans hefur óskað eftir því við stjórn Ljós­leiðarans að láta af störfum. Þetta kemur fram í til­kynningu.

Þar kemur fram að stjórn fé­lagsins og Er­ling Freyr hafi gert með sér sam­komu­lag um starfs­lok og mun hann láta af störfum frá og með 30. júní næst­komandi. Hann mun hins vegar vera stjórn fé­lagsins innan handar næstu mánuði.

Dag­ný Jóhannes­dóttir sem verið hefur stað­gengill Erlings Freys mun taka við starfi fram­kvæmda­stjóra þar til nýr tekur við en starfið verður aug­lýst á næstu dögum, að því er segir í til­kynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×