Trans maður fær orlofsgreiðslur vegna brjóstnáms Kristinn Haukur Guðnason skrifar 3. júlí 2023 20:00 Hæstiréttur og Héraðsdómur Reykjavíkur voru á sama máli en Landsréttur komst að annarri niðurstöðu. Vísir/Vilhelm Hæstiréttur hefur úrskurðað að trans maður átti rétt til veikindaorlofs hjá verslun sem sagði honum upp. Taldi rétturinn að afleiðingar kynmisræmis gætu verið sjúkdómar, svo sem þunglyndi og félagsleg einangrun.
Hæstiréttur felldi sinn dóm þann 28. júní og sneri þar með við dómi Landsréttar frá 5. nóvember. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði hins vegar komist að sömu niðurstöðu og Hæstiréttur og dæmt trans manninum bætur, þann 10. maí árið 2021. Verkalýðsfélagið VR rak málið fyrir hönd trans mannsins gegn verslun sem hann starfaði hjá frá árinu 2015 til 2020 í hlutastarfi en í janúar í þeim mánuði var honum sagt upp störfum. Í uppsagnarbréfinu var sagt að það hafi verið vegna samdráttar í sölu og frammistöðu hans í starfi. Einnig kom fram að maðurinn hefði um miðjan janúar árið 2020 beðið yfirmann sinn um leyfi í febrúar og mars. Það leyfi hefði verið veitt á þeirri forsendu að um væri að ræða orlof sem hefði þegar verið greitt fyrir en að öðru leyti yrði leyfið launalaust. Gert væri ráð fyrir því að hann mætti til vinnu í byrjun apríl og ynni út þann mánuð sem yrði hans síðasti hjá versluninni. Maðurinn sneri hins vegar ekki aftur til starfa. Maðurinn hafði frá árinu 2017 notið meðferðar hjá trans teymi Landspítalans. Lutu málsatvik dómsmálsins að því hvort hann hafi átt veikindarétt í tvo mánuði eftir brjóstnámsaðgerð. VR gerði kröfu um að svo yrði, byggt á læknisvottorði. Enginn vafi um sjúkdóm Lýtalæknir vitnaði til um að brjóstnám væri mikilvægur liður í meðferð trans manna. Þeim liði betur, sjálfsvígstíðni lækkaði og andleg líðan batnaði. Trans Ísland og Samtökin ´78 fagna niðurstöðunni.EPA Geðlæknir vitnaði um að þó að maðurinn hefði fæðst kona hefði hann greint frá því að hafa upplifað sig í röngum líkama frá kynþroskaaldri. Hann hafi fundið fyrir miklum kynama og leitað sér aðstoðar. Þar hafi hann verið greindur og fengið hormónameðferð. Því næst fór hann í brjóstnám en vegna vandamála í aðgerðinni hefði hann verið frá vinnu um nokkurt skeið. „Tekið var fram að meðferð áfrýjanda væri að mestu greidd af sjúkratryggingum enda um staðfestan sjúkdóm að ræða sem félli undir greiningarviðmið og hefði sjúkdómsnúmerið F64.0 í greiningarkerfum,“ segir í dóminum. Vitnaði geðlæknirinn að kynmisræmi leiddi til kynama sem ylli vanlíðan með kyneinkenni. Enginn vafi léki á að þetta teldist sjúkdómur. Lögmaður verslunarinnar sagði að kynmisræmi gæti ekki talist sjúkdómur og breytti engu þó að trans fólki standi heilbrigðisþjónusta til boða. Lýtaðgerð sé valkvæð sem skapi vinnuveitanda ekki skyldu til að greiða laun í veikindaorlofi. Aðgerðin hafi hvorki verið aðkallandi eða nauðsynleg til að draga úr afleiðingum sjúkdóms sem fyrirsjáanlegt væri að leiddi til óvinnufærni. Eins og áður segir féllst Hæstiréttur á rök mannsins og voru honum dæmdar bætur. Það er 479.368 krónur með dráttarvöxtum og 3 milljónir króna í málskostnað á öllum dómstigum. Trans Ísland fagnar en SA harmar Eins og greint hefur verið frá í fréttum RÚV af málinu fagna Samtökin ´78 og Trans Ísland niðurstöðunni. Samtök atvinnulífsins hafa hins vegar harmað hana. Í aðsendri grein á Vísi þann 1. júlí sagði Maj-Britt Hjördís Briem, lögmaður hjá SA, Hæstarétt á villigötum. „Þrátt fyrir að kjarasamningar og lög takmarki vissulega greiðslu veikindalauna frá atvinnurekendum við sjúkdóma og slys er hægt að sækja um greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem hafa það hlutverk að styðja við sjóðsfélaga í fjarvistum sem atvinnurekendur greiða ekki,“ segir hún í greininni.
Málefni trans fólks Dómsmál Vinnumarkaður Heilbrigðismál Mest lesið Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Erlent Blöskrar biðlaunin: „Hvernig segi ég mig úr þessu drasli?“ Innlent Bein útsending: Deildarmyrkvi á sólu Innlent Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Innlent Ekki náð að góma þjófa í dulargervi Innlent Tímaspursmál hvenær Bandaríkin snúi sér að Íslandi Innlent Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Erlent Mengun úr jarðvegi orsakaði skrýtið bragð af neysluvatni Innlent Tala látinna komin yfir þúsund Erlent Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Roðsnakk frá 19 ára frumkvöðli slær í gegn Tímaspursmál hvenær Bandaríkin snúi sér að Íslandi Blöskrar biðlaunin: „Hvernig segi ég mig úr þessu drasli?“ Grænlandsheimsókn Vance og tíu tíma langir tónleikar Mengun úr jarðvegi orsakaði skrýtið bragð af neysluvatni Bein útsending: Deildarmyrkvi á sólu Unglingur hrækti á lögreglumann Ekki náð að góma þjófa í dulargervi Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Fullveldi Íslands háð því að alþjóðalög séu virt Karlar eiga mjög erfitt með að viðurkenna risvandamál Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík RÚV leiðréttir umfjöllun um mál Ásthildar Lóu Eldur í gömlu sundhöllinni í Keflavík Mannskæður jarðskjálfti og vasaþjófar í dulargervi Borgarfulltrúi sagður hafa sýnt ógnandi hegðun á íbúafundi Jagúar, skrautleg ferð, Baltasar Kormákur og fullt af „ís“ Eins leitað eftir slagsmál Greiða atkvæði um verkfall á Grundartanga Kæra skógrækt við Húsavík vegna rasks á varplendi fugla Lokaæfing fyrir almyrkva Vilja að bæjarstjóri lækki laun sín jafn mikið og bæjarfulltrúar Döpur vegna „hetjunnar“ Ástu og „ómaklegrar aðfarar“ RÚV Saka lögregluna um að rægja Kínverja Verður aflífaður eftir allt saman Harðir skjálftar í Asíu og Play til Möltu Lögreglustjóri mun stýra Mannréttindastofnun Vara við þjófum sem dulbúa sig sem ferðamenn Stuðningur við símabann í grunnskólum eykst og mælist 62 prósent Skoða hvort hægt sé að flýta uppbyggingu í Úlfarsárdal Sjá meira