Lífið

Þver­taka fyrir að hjóna­bandinu sé lokið

Máni Snær Þorláksson skrifar
Kyle Richards og Mauricio Umansky þvertaka fyrir að hjónabandinu sé lokið.
Kyle Richards og Mauricio Umansky þvertaka fyrir að hjónabandinu sé lokið. EPA/NINA PROMMER

Kyle Richards segir að orðrómur um skilnað hennar og eiginmanns hennar Mauricio Umansky sé ekki á rökum reistur. Hún segir þó að undanfarið ár sé búið að reyna á hjónabandið sem aldrei fyrr.

„Allar fullyrðingar um að við séum að skilja eru ósannar,“ segja hjónin í yfirlýsingu sem þau birtu bæði á Instagram-síðum sínum.

Þrátt fyrir að þau séu ekki að skilja þá hefur undanfarið ár tekið á þau. „Við höfum átt erfitt ár. Það erfiðasta í hjónabandinu okkar,“ segja þau.

„En við elskum og virðum hvort annað gífurlega mikið.“

Þá segja hjónin að hvorugt þeirra hafi gert eitthvað rangt. Þó svo að þau séu í sviðsljósinu þá biðja þau um að fá að vinna sig í gegnum vandamálin í einrúmi.

„Þó svo að það geti verið skemmtilegt að velta steinum þá biðjum við vinsamlegast um að ekki séu gerðar lygasögur um okkur.“


Tengdar fréttir

Skilin eftir tuttugu og sjö ára hjóna­band

Bandaríska leikkonan Kyle Richards og Mauricio Umansky eru að skilja en tuttugu og sjö ár eru liðin síðan þau giftust. Þrátt fyrir að hjónabandið sé að taka enda þá búa þau ennþá saman á meðan þau finna út úr næstu skrefum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×