Innlent

Einu um­sækj­endurnir um em­bætti dómara við Lands­rétt metnir jafn­hæfir

Eiður Þór Árnason skrifar
Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður,  Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari, Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari og Ásgerður Ragnarsdóttir, settur landsréttardómari.
Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður, Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari, Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari og Ásgerður Ragnarsdóttir, settur landsréttardómari. Vísir

Dómnefnd telur að Ásgerður Ragnarsdóttir, settur landsréttardómari, og Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari séu bæði mjög vel hæf til að gegna embætti dómara við Landsrétt og ekki verði gert á milli milli hæfni þeirra tveggja.

Sama dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara komst að þeirri niðurstöðu að Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður sé hæfust umsækjenda til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara og Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari fylgi þar á eftir.

Einungis tvö sóttu um stöðu við Landsrétt

Þann 12. maí síðastliðinn auglýsti dómsmálaráðuneytið tvö embætti héraðsdómara laus til umsóknar. Báðir dómarar munu hafa fyrstu starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 1. september næstkomandi en annar þeirra er einungis settur í embætti á meðan leyfi skipaðs héraðsdómara stendur.

Þann 26. maí síðastliðinn auglýsti ráðuneytið svo laust til umsóknar eitt embætti dómara við Landsrétt til skipunar frá og með 21. ágúst næstkomandi. Einungis tvær umsóknir bárust og raðaði dómnefnd þeim líkt og áður segir. Tilkynnt er um niðurstöðuna á vef Stjórnarráðsins

Ekki jöfn á öllum sviðum

Ef litið er til þess að reynsla af dómstörfum, reynsla af lögmanns- og málflutningsstörfum og reynsla af stjórnsýslustörfum hafi jafn mikið vægi er það álit dómnefndar að báðir umsækjendur um stöðu við Landsrétt hafi öðlast þá lögfræðilegu þekkingu, sem gera verði kröfu um að landsréttardómari hafi til að bera. Séu umræddir matsþættir virtir í heild er það útkoma nefndarinnar að Kjartan Bjarni standi framar Ásgerði, en ekki sé verulegur munur á milli þeirra þegar borin er saman hæfni í þeim hluta mats. 

Á sama tíma er það mat dómnefndar að Ásgerður hafi með dómsúrlausnum sínum, sem teknar voru til skoðunar, sýnt meiri færni en Kjartan Bjarni til að semja dóma. Á hinn bóginn sé ekki afgerandi munur á hæfni þeirra að þessu leyti. Að þessu framansögðu er það niðurstaða dómnefndar að báðir umsækjendur séu mjög vel hæfir til að gegna embætti dómara við Landsrétt. Telur nefndin að ekki séu efni til að gera upp á milli hæfni þeirra tveggja að því leyti.

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara skipuðu Eiríkur Tómasson formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Kristín Benediktsdóttir, Reimar Pétursson og Þorgeir Örlygsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×