Sport

Dagskráin í dag: Blikar fá Fylkismenn í heimsókn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Blikar þurfa að snúa genginu við til að vera með í titilbaráttunni.
Blikar þurfa að snúa genginu við til að vera með í titilbaráttunni. Vísir/Hulda Margrét

Einn leikur er á dagskrá í beinni útsendingu á sportrásum Stöðvar 2 í kvöld þegar Breiðablik tekur á móti Fylki í Bestu-deild karla.

Eins og svo oft áður er frekar rólegt yfir íþróttalífinu þegar sumarið stendur hvað hæst, en íþróttaþyrstir áhorfendur fá þó eitthvað fyrir sinn snúð í kvöld.

Íslandsmeistarar Breiðabliks taka á móti Fylki í leik sem er hluti af 17. umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld og hefst bein útsending á Stöð 2 Sport klukkan 19:05.

Íslandsmeistararnir þurfa sárlega á sigri að halda ætli þeir sér að vera með í einhverskonar titilbaráttu, enda er liðið nú 13 stigum á eftir toppliði Víkings og án sigurs í seinustu fjórum deildarleikjum. Fylkismenn sitja í næst neðsta sæti deildarinnar, en geta með sigri lyft sér upp í áttunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×