Veður

Kaldara loft færist yfir landið á næstu dögum

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti á landinu verður á bilinu þrettán til 22 stig þar sem hlýjast verður suðvestantil.
Hiti á landinu verður á bilinu þrettán til 22 stig þar sem hlýjast verður suðvestantil. Vísir/Vilhelm

Eftir hlýja daga um liðna helgi verður norðlæg átt ríkjandi og smám saman mun kaldara loft færast yfir landið. Um og uppúr miðri vikunni verður orðið kalt í veðri á norðanverðu landinu og nokkuð vætusamt einnig á þeim slóðum.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að norðanáttin verði ekki búin að ná völdum og megi segja að við séum í leifunum af hita helgarinnar.

Hiti verður á bilinu þrettán til 22 stig þar sem hlýjast verður suðvestantil en kaldara á Austurlandi.

„Áttin er norðlæg eða breytileg, víða 3-8 m/s, en en 8-13 um landið norðvestanvert og með austurströndinni. Víða bjart með köflum, en sunnanlands eru líkur á skúrum síðdegis,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Norðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Skýjað og lítilsháttar væta um landið norðaustanvert, en bjart að mestu sunnan- og vestanlands. Hiti frá 7 stigum við norðausturströndina, upp í 19 stig suðvestantil.

Á miðvikudag: Norðan 5-13 og dálítil væta norðan heiða, en stöku skúrir á Suðurlandi. Hiti 5 til 16 stig, mildast suðvestanlands.

Á fimmtudag og föstudag: Ákveðin norðanátt með rigningu og svölu veðri á norðurhelmingi landsins, en þurrt að kalla og mildara sunnantil.

Á laugardag og sunnudag: Norðaustlæg átt og væta af og til, en skýjað með köflum og þurrt að mestu sunnan heiða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×