Körfubolti

Frábær þriðji leikhluti skilaði stórsigri

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Tómas Valur Þrastarson skoraði 22 stig fyrir Ísland í dag.
Tómas Valur Þrastarson skoraði 22 stig fyrir Ísland í dag. FIBA

Íslenska karlalandsliðið skipað leikmönnum 20 ára og yngri vann öruggan 26 stiga sigur er liðið mætti Svartfjallalandi í umspili um 9.-16. sæti A-deildar Evrópumótsins í körfubolta í dag, 99-73.

Jafnræði ríkti á með liðunum framan af leik og íslenska liðið leiddi aðeins með tveimur stigum að loknum fyrsta leikhluta. Liðin skiptust svo á að hafa forystuna í öðrum leikhluta þar sem íslenska liðið náði mest sjö stiga forskoti, en leiddi með þrmur stigum þegar flautað var til hálfleiks, staðan 42-39.

Íslensku strákarnir tóku hins vegar öll völd á vellinum eftir hálfleikshléið og skoruðu 37 stig gegn aðeins 16 stigum Svartfellinga í þriðja leikhluta. Íslenska liðið náði því 24 stiga forskoti fyrir lokaleikhlutann og gerði þar með svo geott sem út um leikinn.

Fjórði leikhlutinn var því hálfgert formsatriði fyrir íslenska liðið sem vann að lokum öruggan 26 stiga sigur, 99-73.

Orri Gunn­ars­son var stigahæstur í íslenska liðinu með 30 stig, en næstir komu Tóm­as Valur Þrast­ar­son með 22 stig og Alm­ar Atla­son með 21.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×