Umfjöllun: Ísland - Finnland 1-2 | Tap í fyrsta heimaleik ársins

Andri Már Eggertsson og Hjörtur Leó Guðjónsson skrifa
Ísland-Finnland
Ísland-Finnland Vísir/Anton Brink

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mátti þola 2-1 tap er liðið tók á móti Finnum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í kvöld. Berglind Rós Ágústsdóttir skoraði mark Íslands eftir að Eveliina Summanen og Jutta Rantala höfðu komið Finnum tveimur mörkum yfir.

Það var vel mætt á Laugardalsvöll þar sem Ísland fékk Finnland í heimsókn í vináttuleik en íslensku stelpurnar eru í fullum undirbúningi fyrir Þjóðadeildina. Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, byrjaði í 3-5-2 leikkerfinu líkt og gegn Sviss í síðasta vináttuleik sem endaði með 1-2 sigri Íslands.

Íslenska liðið fór vel af stað og eftir tvær mínútur komst Svava Rós Guðmundsdóttir ein í gegn. Karólína Lea átti glæsilega sendingu þar sem hún vippaði boltanum inn fyrir vörn Finnlands en skot Svövu var ekki gott og endaði framhjá.

Svava Rós Guðmundsdóttir fékk dauðafæri snemma leiksVísir/Anton Brink

Eftir líflegar fyrstu tíu mínútur datt leikur Íslands niður og Finnland fór að færa sig ofar á völlinn. Gestirnir héldu betur í boltann og bjuggu sér til góðar stöður á vallarhelmingi Íslands.

Finnland komst verðskuldað yfir á 28. mínútu þegar Katariina Kosola renndi boltanum á Eveliina Summanen sem tók skot langt fyrir utan teig þar sem boltinn fór í stöngina og inn.

Eveliina Summanen skoraði mark FinnlandsVísir/Anton Brink

Sveindís Jane var nálægt því að jafna skömmu eftir mark Finnlands. Sveindís gerði vel í að búa sér til færi gegn þremur varnarmönnum. Sveindís lét síðan vaða á markið en boltinn fór í stöngina. Sveindís hélt áfram að koma sér í færi og þegar fyrri hálfleikur var við það að klárast slapp hún ein í gegn en skaut yfir.

Sveindís Jane fékk þó nokkur færi til að skora Vísir/Anton Brink

Fleiri urðu mörkin ekki og Finnland var 0-1 yfir í hálfleik.

Marki yfir héldu Finnar áfram að sækja í sig veðrið. Gestirnir fengu þrjú nokkuð góð færi á fyrstu tíu mínútum síðari hálfleiks en aðeins eitt skot fór á markið sem Telma Ívarsdóttir varði. Líkt og í fyrri hálfleik hélt Sveindís Jane áfram að vera eina ógn íslenska liðsins fram á við.

Það var vel mætt á LaugardalsvöllinnVísir/Anton Brink

Jutta Rantala bætti síðan við öðru marki Finnlands þegar 66 mínútur voru liðnar. Katariina Kosola fór ansi illa með Berglindi Rós Ágústsdóttur og renndi síðan boltanum fyrir markið á Juttu Rantala sem skoraði. Þetta var önnur stoðsending Kosola í leiknum.

Tveimur mínútum síðar bætti Berglind Rós upp fyrir mistökin og minnkaði muninn í 1-2. Karólína Lea tók aukaspyrnu þar sem hún gaf boltann fyrir markið. Berglind gerði vel í að skalla boltann í slána og inn.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lagði upp fyrsta mark ÍslandsVísir/Anton Brink

Fleiri urðu mörkin þó ekki og niðurstaðan varð því 2-1 tap íslenska liðsins.

Ísland heldur næst til Austurríkis þar sem liðið spilar við heimakonur þriðjudaginn 18. júlí klukkan 17:45. Það verður áhugavert að fylgjast með hvort Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, muni gera breytingar á upplegginu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira