Lífið

Nýr pipar­sveinn á átt­ræðis­aldri

Máni Snær Þorláksson skrifar
Gerry Turner er 71 árs gamall og leitar að ástinni í raunveruleikaþáttunum í haust.
Gerry Turner er 71 árs gamall og leitar að ástinni í raunveruleikaþáttunum í haust. ABC/BRIAN BOWEN SMITH

Raunveruleikaþættirnir Bachelor hafa lengi verið vinsælir en í haust hefst ný útgáfa af þáttunum, The Golden Bachelor. Þar er piparsveinninn ekki ungur maður í leit að fyrstu ástinni sinni heldur karlmaður á áttræðisaldri sem leitar að ástinni í annað skipti.

Gerry Turner er 71 árs gamall afi frá Indiana-ríki í Bandaríkjunum. Hann var veitingahúseigandi en er nú kominn á eftirlaun og býr í húsi við stöðuvatn í Indiana. Í kynningu á Turner í Variety kemur fram að honum þyki til að mynda skemmtilegt að eyða tíma með vinum og fjölskyldu, halda grillveislur og hvetja uppáhalds íþróttaliðin sín til dáða.

Turner giftist æskuástinni sinni, Toni, árið 1974 og voru þau saman í fjörutíu og þrjú ár. Á þeim tíma eignuðust þau tvö börn, Angie og Jenny, og síðar tvö barnabörn. Turner er í dag ekkill þar sem Toni lést árið 2017 eftir veikindi. 

Nú, sex árum síðar, er Turner tilbúinn að finna ástina á ný. Fram kemur að hann sé að taka þátt í raunveruleikaþáttunum með stuðningi fjölskyldunnar sinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.