Lífið

Dagurinn dá­sam­legur þrátt fyrir að nær ekkert hafi farið eftir plani

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Katrín Edda og Markus Wass­er­baech gengu í það heilaga um helgina í annað sinn.
Katrín Edda og Markus Wass­er­baech gengu í það heilaga um helgina í annað sinn. Ívar Eyþórsson

„Við erum í smá spennufalli eftir þetta,“ segir verkfræðingurinn og áhrifavaldurinn Katrín Edda. Hún og Markus Wasserbaech giftu sig við hátíðlega athöfn um helgina. Þetta var í annað sinn sem hjúin gengu í það heilaga en fyrst giftu þau sig við litla athöfn í Covid faraldrinum. Því var tilhlökkunin mikil við að fagna ástinni með vinum og vandamönnum.

„Þetta var magnaður dagur sem leið svo ótrúlega hratt,“ segir Katrín Edda í samtali við blaðamann.

„Athöfnin fór fram í Garðakirkju og veislan var haldin á Grand Hótel um kvöldið. Hún var æðislegt og allt var svo ótrúlega flott.“

Katrín Edda segir að tíminn hafi hreinlega flogið á brúðkaupsdaginn.Aðsend

Grátur og gleymdur blómvöndur

Hún segir þó ýmislegt óvænt hafa komið upp á stóra deginum sem ekki var hægt að undirbúa sig fyrir.

„Ég fór í hár og förðun hjá Alexöndru Sif um morguninn og besta vinkona mín kom með. Það var ótrúlega skemmtilegt en tíminn flaug frá okkur og allt í einu varð ég smá stressuð því við vorum eiginlega á seinustu stundu,“ segir Katrín Edda, sem er ekki mikið fyrir að vera óstundvís. Þegar hún var að mæta í kirkjuna fattaði hún svo að brúðarvöndurinn hafði gleymst í förðuninni.

Katrín Edda var stórglæsileg á brúðkaupsdaginn. Alexandra Sif Nikulásdóttir sá um hár og förðun.Aðsend

„Berglind vinkona mín brunaði að sækja hann og þegar hún kom til baka var klukkan orðin rúmlega þrjú. Elísa Eyþóra stelpan mín sem er sjö mánaða var þá hágrátandi en hún átti að vera keyrð inn kirkjugólfið í voða krúttlegum vagni af litlu frænku minni. Það gekk hinsvegar ekki því hún var á orginu elsku barnið og frænka mín hélt því á henni inn.“

Markus, Katrín og Elísa Eyþóra.Aðsend

Andaði léttar eftir heitin

Katrín Edda segist því hafa verið smá stressuð í upphafi athafnarinnar.

„Mér leið ekkert sérstaklega vel því ég var búin að vera á þeytingi, Elísa var hágrátandi og mér fannst eins og ég væri að klúðra öllu sem var ógeðslega erfitt.“

Líðan Katrínar breyttist þó blessunarlega fljótt.

„Þegar það var búið að gifta okkur og Markus settist hliðina á mér þá fann ég hvernig ég andaði léttar og mér leið miklu betur. Það var búið að vera svo mikið að gerast og maður var búinn að vera smá upptjúnaður.“

Katrín Edda og Markus áttu dásamlegan brúðkaupsdag þó að allt hafi ekki farið eftir plani.Aðsend

Eftir athöfnina fóru brúðhjónin beint í myndatöku.

„Ívar Eyþórsson tók myndirnar og þær voru frábærar. Eva vinkona mín fór aðeins út með Elísu Eyþóru og hún sofnaði hjá henni en litla var búin að vera vakandi í sex tíma og var orðin mjög þreytt svo það var gott að ná að lúra smá. Hún kom svo með okkur í myndatökuna klukkutíma seinna og var miklu hressari.“

Matarpása í myndatökunni hjá Elísu Eyþóru. Aðsend

Fyndinn og krúttlegur brúðkaupsdans

Að myndatökunni lokinni tóku veisluhöldin svo við á Grand Hótel.

„Þar voru allir vinir okkar og okkar fólk og það var algjörlega yndislegt. Veislan var frábær. Berglind besta vinkona mín og Atli Viðar bróðir minn voru veislustjórar og svo hélt Atli Viðar partýinu gangandi fram á nótt sem DJ. Við Markus byrjuðum dansgólfið á rosa fyndnum og krúttlegum brúðkaupsdansi,“ segir Katrín brosandi.

Hjónin dönsuðu skemmtilegan brúðardans.Aðsend

„Þetta heppnaðist bara svo ótrúlega vel og alltof fljótt að líða einhvern veginn. Við erum núna í smá spennufalli á eftir þetta,“ segir Katrín Edda og bætir við að það verði gott að geta tekið því aðeins rólega.

„Ég hef samt ekkert náð að hvíla mig því við erum með þýska gesti í heimsókn og ég er búin að vera að plana í kringum þau sem er ótrúlega skemmtilegt. Við fórum með þau í Skylagoon í gær og út að borða og erum núna á leið í Reykjadal. Ég næ kannski að slaka á næstu helgi,“ segir hún að lokum og hlær.

Nýgift!Aðsend

Hér má sjá fleiri myndir af brúðkaupsdegi Katrínar Eddu og Markusar:

Ástin var svo sannarlega í loftinu á laugardaginn. Ívar Eyþórsson

Fjölskyldan Katrín Edda, Markus og Elísa Eyþóra.Ívar Eyþórsson

Hjónin fögnuðu deginum með sínu besta fólki.Ívar Eyþórsson

Hjónin mætt í veisluna á Grand Hótel.Aðsend

Katrín Edda og Berglind besta vinkona hennar og veislustjóri í brúðkaupinu. Aðsend

Katrín Edda og Markus að setja upp hringana.Aðsend

Glæsilegur bíll.Aðsend

Athöfnin fór fram í Garðakirkju.Aðsend

Gleði og gaman.Aðsend

Nóg af kossum á þessum ástar degi. Aðsend

Kökukoss á Grand Hótel.Aðsend
Gestirnir tóku vel á móti brúðhjónunum.Aðsend

Tengdar fréttir

Katrín Edda trúlofaðist á fjalli á Mallorca

Samfélagsmiðlastjarnan og vélaverkfræðingurinn Katrín Edda Þorsteinsdóttir er trúlofuð. Kærasti hennar, Markus Wasserbaech, fór á skeljarnar þegar þau voru í fríi á Mallorca. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.