Lífið

Gor­don Rams­ay sást á kok­teil­bar í mið­borginni

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Ramsey er enn og aftur komin til Íslands.
Ramsey er enn og aftur komin til Íslands. EPA

Stjörnukokkurinn Gordon Ramsay er enn á ný kominn til Íslands. Sést hefur til hans á kokteilbar í miðborg Reykjavíkur nú í kvöld.

Óhætt er að segja að kokkurinn sé orðinn mikill Íslandsvinur en hann hefur iðulega komið til landsins um árabil. 

Á ferðum sínum til Íslands hefur Ramsay meðal annars tekið upp matreiðsluþætti á Vestfjörðum, farið í laxveiði í Rangá, skemmt sér á Bankastræti Club og gætt sér á réttum ýmissa veitingastaða í miðbænum. 

Nú í kvöld sást til hans sletta úr klaufunum á kokteilbarnum Tipsý í Hafnarstræti í Reykjavík. Meira er ekki vitað um Íslandsreisu kokksins knáa að sinni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.