Erlent

Klifu fjórtán hæstu tinda heims á þremur mánuðum

Samúel Karl Ólason skrifar
 Kristin Harila og Tenjen Sherpa fóru upp á þau fjórtán fjöll heimsins sem eru hærri en átta kílómetrar á þremur mánuðum og einum degi. Engin kona hefur náð því áður.
Kristin Harila og Tenjen Sherpa fóru upp á þau fjórtán fjöll heimsins sem eru hærri en átta kílómetrar á þremur mánuðum og einum degi. Engin kona hefur náð því áður. EPA/NARENDRA SHRESTHA

Norski fjallgöngugarpurinn Kristin Harila hefur sett heimsmet með því að klífa á tinda þeirra fjórtán fjalla heims sem eru hærri en átta kílómetrar. Þetta gerði hún með Tenjen Sherpa og á einungis þremur mánuðum og einum degi eða 92 dögum.

Metið setti Harila þegar hún náði á topp fjallsins K2 í morgun. Aðstæður á þessu næst hæsta fjalli heims þykja ekki góðar í ár og hafa margir hætt við að reyna við toppinn. Síðustu sex hundruð metrarnir á K2 reyndust sérstaklega erfiðir og tímafrekir.

Í viðtali við NRK í morgun, þar sem hún var stödd á fjallinu, sagði Harila að gífurlega hættulegt væri að fara niður fjallið en hún hefði trú á því að þeim myndi takast það án vandræða.

Hún sagði líka að hún ætlaði ekki að byrja að hugsa um metið sem þau hefðu slegið fyrr en þau væru komin úr hættu.

„Við verðum að einbeita okkur,“ sagði Harila. „K2 er enginn brandari.“

Kristin Harila setti heimsmet þegar hún komst á topp fjórtán hæstu fjalla heims á þremur mánuðum og einum degi.EPA/NARENDRA SHRESTHA

Allir tindarnir átta eru í Himalaja- og Karakoram-fjallgörðunum í Asíu. Tindarnir heita Everest, K2, Kanchenjunga, Lhotse, Makalu, Cho Oyu, Dhaulagiri, Manaslu, Nanga Parbat, Annapurna, Gasherbrum I, Gasherbrum II, Broad Peak og Shishapangma.

Ítalinn Reinhold Messner var fyrstur til að ná þessum áfanga og það gerði hann árið 1986 og án súrefnistanka. Fyrsta konan til að gera það var hin spænska Edurne Pasaban og gerði hún það árið 2010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×