Tónlist

Voru sam­mála um að Þjóð­há­tíð væri besta partý sögunnar

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Arnar Gauti og Darri Tryggvason notast við listamannsnöfnin Disco Curly og Háski. Þeir voru að gefa út lagið Besta Partý Ever.
Arnar Gauti og Darri Tryggvason notast við listamannsnöfnin Disco Curly og Háski. Þeir voru að gefa út lagið Besta Partý Ever. Aðsend

Tónlistarmennirnir Háski og Disco Curly voru að senda frá sér lagið „Besta Partý Ever“ sem fjallar einfaldlega um alvöru partý. Lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag.

Blaðamaður ræddi við Arnar Gauta sem gengur undir listamannsnafninu Disco Curly og fékk að heyra nánar frá laginu.

„Lagið kom út frá því að við vorum að pæla hvernig við gætum gert tribute lag til Þjóðhátíðar, þar sem enginn hefur gert það áður. Við vorum að kasta á milli hugmyndum um hvað það ætti að fjalla og svo bara small þetta. Við erum miklir stemningsmenn og elskum að vera í góðra vina hóp. Við vorum sammála um að Þjóðhátíð í Eyjum væri besta partý sem við höfðum farið í og í rauninni alveg galið gott concept fyrir partý.“

Strákarnir tóku lagið í Vestmannaeyjum um helgina og segja stemninguna hafa verið gríðarlega.

Hægt er að hlusta á Besta Partý Ever í spilaranum hér að neðan:

Klippa: Háski & Disco Curly - Besta Partý Ever

Það var mikil Þjóðhátíðarstemning á Íslenska listanum í dag en FM957 stökk upp í fyrsta sæti listans með lagin í Dalinn. Iceguys sitja í öðru sæti með lagið Rúletta og Emmsjé Gauti í því þriðja með Þjóðhátíðarlagið í ár, Þúsund hjörtu.

Lög Íslenska listans:

Íslenski listinn á Spotify:

Íslenski listinn í spilara:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.