Skoðun

Þúsund hjörtu slá í takt!

Íris Róbertsdóttir skrifar

Í ár eru 149 ár síðan fyrsta Þjóðhátíðin okkar var haldin. Þjóðhátíð er ein elsta menningarhátíð landsins. Einmitt þessi langa saga og hefð - og þessi órofa tenging við fortíð okkar og þá sem á undan fóru hér í Eyjum - leggur okkur ríkar skyldur á herðar. Við þurfum að hlúa að þessari miklu menningarperlu sem Þjóðhátíðin er.

Við virðum sögu hennar og svipmót; hefðir og venjur. Við virðum kynslóðirnar sem héldu þessa hátíð á undan okkur; syngjum enn sömu lögin og ömmur okkar og afar og borðum meira að segja svipað bakkelsi! Og síðast en ekki síst: kynslóðirnar verja saman tíma Í Dalnum. Þetta er það sem gerir þessa hátíð að einstakri upplifun. Hátíðin hefur á þessum árum þroskast og dafnað, tilhlökkunin er alltaf jafn mikil hjá okkur heimafólki og gestum; að mæta í Dalinn.

Í þjóðhátíðarvikunni er mikil stemming og nóg að gera hjá öllum við að undirbúa tjöldunina og „búsetuna“ í Dalnum. Rifja upp minningar frá fyrri hátíðum og hlusta á þau fjölmörgu frábæru þjóðhátíðarlög sem til eru og við þekkjum svo vel. Svo er hún auðvitað skemmtilegur hluti af okkar tímatali í Eyjum: hlutirnir gerast ýmist fyrir eða eftir Þjóðhátíð.

Ein fyrsta minningin mín af Þjóðhátíð er frá því að ég var 6 ára og við fjölskyldan vorum að labba inn í Dal á setninguna. Ég var í nýjum heimasaumuðum skokk og ég man hvað mér fannst ég fín. Og ég man líka að ég hugsaði að Þjóðhátíðin væri svolítið eins og jólin; allir spenntir og glaðir og mamma sauma búin að sauma á okkur systur ný föt.

Við sem búum í Eyjum og þeir sem hafa tengingar til Eyja þekkjum öll sögu Þjóðhátíðar og mikilvægi hennar og flest eigum við ómetanlegar minningar tengdar hátíðinni. Samvera fjölskyldunnar þegar kynslóðir koma saman og njóta þess að vera í Dalnum. Varðveitum þessa menningarperlu og minningarnar og höldum áfram að skapa nýjar. Í ár verða tveir Eyjakórar á sviðinu þegar þjóðhátíðarlagið verður frumflutt og þeir sem setið hafa í Brekkunni vita að þetta verður mögnuð stund. Og þegar Brekkusöngurinn hefst á sunnudagskvöldið skulum við hugsa fallega til Árna Johnsen sem kom honum á legg í núverandi mynd fyrir 46 árum. Blessuð sé minning hans.

Þeir sem ekki hafa upplifað Þjóðhátíðina okkar eiga mikið eftir.

Herjólfsdalur verður miðpunkturinn okkar næstu daga - „ Þó að nóttin mæti verður aftur bjart. Þegar þúsund hjörtu slá i takt.“

Sjáumst í Dalnum!

Höfundur er bæjarstjóri Vestmannaeyja.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×