Lífið

Pálmi ætlar að breyta heiminum

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Pálmi Gunnarsson á sviði.
Pálmi Gunnarsson á sviði. Lilja Guðmundsdóttir

Tónlistarmaðurinn Pálmi Gunnarsson gaf út lagið Ég skal breyta heiminum í dag. Lagið var samið af syni Pálma, Sigurði Helga Pálmasyni og textann samdi tónlistamaðurinn og textasmiðurinn Bragi Valdimar Skúlason.

Lagið má finna á öllum helstu streymisveitum. Einvalalið listamanna kemur að útsetningu lagsins og má þar helst nefna Gunnlaug Briem á trommum, Þórir Úlfarsson á hljómborð, Kristján Grétarsson á gítar, Jens Hansson á saxófón. Þá leikur Pálmi sjálfur á bassa. 

Upptökustjórn var í höndum Þóris Úlfarssonar.

Lagið má heyra í spilaranum hér að neðan:

Pálmi er einn þekktasti dægurlagasöngvari landsins. Hann gerði meðal annars lagið Þitt fyrsta bros, Ég er á leiðinni, Íslenska konan og Hótel jörð svo fátt eitt sé nefnt.

Hann var meðlmiður hljómsveitarinnar Icy sem sigraði Söngvakeppni sjónvarpsins árið 1986 með lagið  Gleðibankinn. Hljómsveitin keppti í fyrsta sinn fyrir Íslands hönd í Eurovision sem fór fram í Bergen í Noregi. Þá var Pálmi meðlimur hljómsveitinnar Mannakorn ásamt því að vera ötull sólótónlistarmaður.

Í innslaginu hér að neðan má sjá framlag Íslands í Eurovision árið 1986.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×