Veður

Þurrt framan af en skúrir eftir hádegi

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Í Vestmannaeyjum þar sem fjöldi fólks fagnar þjóðhátið á að stytta upp upp úr hádegi og þá lætur sólin sjá sig.
Í Vestmannaeyjum þar sem fjöldi fólks fagnar þjóðhátið á að stytta upp upp úr hádegi og þá lætur sólin sjá sig. Vísir/Vilhelm

Það verður breytileg átt í dag, víða þrír til átta metrar á sekúndu, en hvassara á Suðausturlandi. Skýjað með köflum og þurrt til að byrja með en eftir hádegi myndast skúrir á víð og dreif á sunnan- og vestanverðu landinu, annars bjart og þurrt.

Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings um veðurhorfur á landinu í dag.

Þar segir að hiti í dag verði á bilinu tíu til átján stig. Á morgun verði norðlægari átt og bjart með köflum en áfram stöku skúrir á suðvesturhorninu. Þá breytist hitinn lítið.

Á miðvikudag verður bjartviðri en seinnipartinn þykknar upp um sunnanvert landið ásamt vaxandi austanátt og fer að rigna þar um kvöldið. Hitinn verði tólf til sautján stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Svona verður veðrið næstu daga samkvæmt Veðurstofunni:

Á þriðjudag: Hæg breytileg átt. Víða skúrir, einkum síðdegis, en bjart með köflum norðaustantil, hiti 10 til 16 stig.

Á miðvikudag: Breytileg átt 3-10 m/s og víða léttskýjað. Vaxandi austanátt og þykknar upp á sunnanverðu landinu síðdegis, fer að rigna þar um kvöldið. Hiti tíu til átján stig, hlýjast vestantil.

Á fimmtudag: Austan átt 8-13, en 13-18 með suðurströndinni. Dálítil rigning eða súld sunnan- og vestanlands, en úrkomulítið norðan- og austantil. Hiti víða tólf til átján stig.

Á föstudag: Austlæg átt 5-13 og bjart að mestu. Hiti ellefu til átján stig, hlýjast vestantil.

Á laugardag: Norðaustan 5-13. Lítilsháttar væta austanlands og með norðurströndinni, en bjart að mestu sunnan heiða. Hiti tíu til tuttugu stig, hlýjast um landið suðvestanvert.

Á sunnudag: Útlit fyrir norðlæga átt. Rigning eða súld með köflum norðanlands, annars dálitlar skúrir. Hiti átta til átján stig, hlýjast syðst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×