Sport

Dagskráin í dag: Umferðin klárast og Stúkan gerir hana upp

Valur Páll Eiríksson skrifar
Stjörnumenn heimsækja Árbæinn.
Stjörnumenn heimsækja Árbæinn. Vísir/Diego

19. umferð Bestu deildar karla klárast í kvöld með einum leik. Stúkan mun gera umferðina upp í kjölfarið.

Fylkir tekur á móti Stjörnunni í Árbæ í eina leik dagsins og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan 19:00. Fylkismenn þurfa stig í baráttunni í neðri hlutanum en Stjarnan keppist um Evrópusæti.

Guðmundur Benediktsson og félagar gera svo umferðina alla saman upp í kjölfarið, klukkan 21:25 á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×