Fornbílar eru víða á landinu og margir þeirra mjög fallegir en að sjá fornbíl með fornbílahjólhýsi aftan í er mjög sérstakt og skemmtilegt. Hér erum um að tala um fornbíl og hjólhýsi hjá Magnúsi Magnússyni, sem er forfallinn fornbílakarl í Keflavík í Reykjanesbæ.
En hvað getur hann sagt okkur um hjólhýsið?
„Ég flutti það inn frá Svíþjóð 2017 og er búin að vera að græja það að innan en það er allt orginal að innan nema efnið bekkjunum og gólfinu og svo er það málað að utan, þetta er það eina sem var gert.”
En bíllinn, hvers konar bíll er þetta ?
„Þetta er Ford Cup 1946. Það er búið að lækka á honum toppinn og það er loftpúðafjöðrun að framan og aftan. Ég gerði þetta allt sjálfur nema málingarvinnuna,” segir Magnús.
En hvað er svona spennandi við það að vera á fornbíl?
„Það er bara athyglin, rúnturinn og gamanið í kringum þetta allt. Það eru allir símar á lofti þar sem við hjónin erum á ferðinni á bílnum með hjólhýsið aftan í,” segir Magnús hlæjandi.
En númerið á bílnum T 1, hvaðan kemur það ?
„Sýslumaðurinn á Hólmavík var með það, ég er nefnilega úr Standasýslunni, átti heima í Bjarnafirðinum og náði mér í þetta númer.”
Og Magnús segist vera með salerni af bestu gerð í hjólhýsinu.
„Já, orgilnal dollu með koppnum ofan í. Svo er bara að opna hurðina og skvetta út,” segir hann og hlær meira.
Og Magnús er með bíl inn í bílskúr, sem hann er að gera upp en hann eyðir meira og minna öllum sínum frítíma inn í bílskúr enda segir konan hans að hann sé best geymdur þar.
„Já, ég er þá á vísum stað,” segir hann.
„Þetta er Pacard 1941, 110 bíll, en hann kemur upphaflega frá Bíldudal,” segir Magnús.