Álvarez hetja Man City

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Annar skoraði sigurmarkið en hinn lagði það upp.
Annar skoraði sigurmarkið en hinn lagði það upp. EPA-EFE/ADAM VAUGHAN

Englandsmeistarar Manchester City unnu 1-0 sigur á Newcastle United í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Leikurinn fer ekki í sögubækur fyrir skemmtanagildi en Julián Álvarez skoraði eina mark leiksins með þrumuskoti eftir hálftíma leik. Hann fékk boltann frá Phil Foden hægra megin í vítateignum og lét vaða.

Nick Pope kom engum vörnum við í marki Newcastle en setja má spurningamerki verið fótavinnu enska markvarðarins.

Fleiri urðu mörkin ekki og meistararnir hafa því unnið báða leiki sína til þessa í deildinni. Sigur kvöldsins var 17. sigur Man City í röð í öllum keppnum en það er félagsmet.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira