Bíó og sjónvarp

„Eins mikið og ég elska þessar stelpur gæti ég ekki viku í viðbót“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Önnur þáttaröð af raunveruleikaþáttum LXS fer í loftið á Stöð 2 þann 6. september.
Önnur þáttaröð af raunveruleikaþáttum LXS fer í loftið á Stöð 2 þann 6. september. Stöð 2

Fyrsta stiklan af annarri þáttaröð raunveruleikaþáttanna LXS hefur verið birt. Þar má sjá vinkonurnar og áhrifavaldana Birgittu Líf, Ástrós Trausta, Magneu Björg, Sunnevu Einars og Ínu Maríu ferðast, skála, gráta, hlægja og allt þar á milli.

Í stiklunni má sjá brot úr ferð þeirra til Kanaríeyja, þrítugs afmæli Birgittu Lífar og óvæntri barnasturtu Ástrósar sem var með þeim glæsilegri.  

Af stiklunni að dæma er lífið ekki alltaf dans á rósum hjá vinkonunum en í broti frá Kanarí má sjá Magneu grátandi að biðja um að láta slökkva á myndavélunum. „Í alvörunni, nenniðið að hætta núna og slökkva á þessu,“ segir hún

Þá virðist Sunneva hafa fengið nóg eftir viku dvöl í sólinni: „Eins mikið og ég elska þessar stelpur gæti ég ekki viku í viðbót.“ 

Stikluna má sjá í heild sinni hér að neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.