Lífið

„Margir halda að þetta sé Eyes guys út af augunum í Rúrik“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
IceGuys tók nýverið upp myndband við lagið Krumla.
IceGuys tók nýverið upp myndband við lagið Krumla. Baldur Kristjáns

„Ég er fyrrverandi knattspyrnumaður og mig langaði að upplifa liðsheild, maður þurfti kannski faðm til að leita í,“ segir tónlistarmaðurinn Jón Jónsson og guðfaðir strákabandsins IceGuys, eins og hann orðar það. 

Hugmyndin fæddist í febrúar síðastliðnum þegar Jón þyrsti í að vera fleiri en einn söngvari á sviðinu.

„Hugmyndin kom upp 1. febrúar og ég sendi strax á strákana. Þú sérð hvernig þetta er búið að vera, það er engin tilviljun að Backstreet Boys komu til landsins í apríl og nú endurkoma Nylon hópsins,“ segir Jón og vitnar í gamla tíma og notalgíu tilfinningu. 

„Ísöldin er hafin“

Spurður hvort IceGuys eigi sér fyrirmyndir innan erlendu tónlistarsenunnar segir Jón: „IceGuys eru bara IceGuys. Við erum hér til að dreifa gleði og skemmtun með.“

Nú eru flestir meðlimirnir þekktir íslenskir tónlistarmenn. Hvernig kom til að fá Rúrik í bandið?

„Rúrik er bara stjarna sem Ísland þurfti að fá að kynnast betur. Ég hef  vitað það lengi og hann kann að spila á gítar og syngja. Hann hefur unnið risakeppnir í Þýskalandi og fleira. Hann er meira en bara augu þó svo að margir halda að þetta sé Eyes Guys, þá út af augunum í Rúrik. Ég þarf því oft að leiðrétta að þetta sé IceGuys,“ segir Jón og bætir við að Ísöldin sé hafin. 

Jón fer fögrum orðum um Rúrik.Baldur Kristjáns

Aðrir meðlimir bandsins eru þeir Aron Can, Herra Hnetusmjör og Friðrik Dór.  

Hvaða meðlimur finnst þér skemmtilegastur ef þú þarft að velja?

„Ég er að komast meira og meira að því að Árni Páll er algjör „comedy king“, með grín á réttum tímasetningum,“ segir Jón sem hendir bróður sínum, Friðriki Dór, fyrir rútuna sem erfiðasta manni bandsins.

„Alltaf Frikki, hann er alltaf að tala um hittarana sem hann er að gera. En það er líka gott og er að halda standaranum hjá okkur háum.“

Tvö lög og sprengjur

IceGuys hóf sölu á fyrstu tónleika sveitarinnar sem fara fram í Kaplakrika 16. desember fyrr í dag. Að sögn Jóns fer miðasalan vel af stað.

„Þetta hlýtur að vera í fyrsta sinn sem hljómsveit með tvö lög heldur tónleika. Það er mikil eftirspurn og nægur tími fram að jólum svo það er aldrei að vita hvað við náum að gera fyrir þann tíma. Við erum einnig búnir að tryggja okkur geggjuð upphitunaratriði,“ segir Jón. 

Hann telur upp meðlimi bandsins sem munu flytja sína helstu slagara fyrir áhorfendum. 

„Í anda Ísdrengjana hlýtur að vera stutt í jólastrákana,“ segir Jón og nefnir þar búninga, sprengjur og dans og gleði á komandi tónleikum.

Hægt er að nálgast miða á tónleikana hér.


Tengdar fréttir

Iceguys gefa út sitt fyrsta lag

Fyrsta íslenska strákasveitin, sem var stofnuð í febrúar á þessu ári, hefur skilað fyrsta lagi sínu á útvarpsstöðvarnar. Iceguys er skipuð þremur söngvurum en tveir þeirra, Óli Már og Einar Valur náðu alla leið í 32 manna úrslit Idol stjörnuleitar nú síðast. Kjartan Arnald var svo áður í dúettnum Acoustic.

Íslensku lögin í meirihluta

Efstu sex lög Íslenska listans á FM eru íslensk í þessari viku en listinn var fluttur á FM957 fyrr í dag. Herra Hnetusmjör trónir á toppi listans aðra vikuna í röð með nýjasta lagið sitt All In, Iceguys sitja í öðru sæti með lagið Rúlletta og Patrik hækkar sig upp í þriðja sæti ásamt Luigi með lagið Skína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.