Tónlist

Ævarandi leit að réttu stemningunni

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Sveitin JónFrí var að senda frá sér lagið Andalúsía en lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM.
Sveitin JónFrí var að senda frá sér lagið Andalúsía en lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM. Anna Maggý

„Þetta er kærulaus tónlist um hversdagsleg málefni. Um sápukúludiskótek og sangríu. Um þjóðarsálina, íslenska sumarið og hina eilífu leit að réttu stemningunni,“ segir tónlistarmaðurinn Jón Frímannsson um lagið Andalúsía sem hljómsveit hans JónFrí var að senda frá sér.

Lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM fyrr í dag en hljómsveitin sendi frá sér tvö lög fyrr í ágúst sem eru eins konar ástarbréf til hins íslenska sumars.

„Ég samdi Andalúsíu á kassagítar og var að reyna að færa í stílinn þessa ævarandi leit okkar að réttu stemningunni,“ segir Jónfrí um lagið. „Við fundum svo frekar fljótt á hljómsveitaræfingum að við yrðum að klæða lagið í einhverskonar 70’s diskóbúning.“

Hér má hlusta á JónFrí á streymisveitunni Spotify.

Hljómsveitin JónFrí er í eilífðri leit að réttu stemningunni.Anna Maggý

Strákabandið Iceguys er mætt í fyrsta sæti Íslenska listans á FM með lagið Rúlletta en lagið þeirra Krumla stökk sömuleiðis upp í fjórða sæti listans. Herra Hnetusmjör situr í öðru sæti með lagið sitt All In og Patrik og Luigi fylgja fast á eftir í þriðja sæti með lagið Skína.

Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00 og 16:00 á FM957.

Lög Íslenska listans:

Íslenski listinn á Spotify:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.