Tunglið verður fullt klukkan 1:35 aðfararnótt fimmtudagsins 31. ágúst. Það verður svokallaður ofurmáni vegna þess að tunglið verður í jarðnánd.
Ofurmáni er það kallað þegar tunglið er innan við níutíu prósent af minnstu fjarlægð þess frá jörðinni. Fjarlægðin á milli hnattanna tveggja er ekki stöðug vegna þess að braut tunglsins um jörðina er sporöskjulaga. Tunglið þarf að vera innan við 367.607 kílómetra fjarlægð frá miðju jarðarinnar til þess að teljast ofurmáni, að því er kemur fram í grein á Stjörnufræðivefnum.
Ofurmánar eru ekki sérlega óvanalegir viðburðir. Þeir endurtaka sig á rétt rúmlega árs fresti en þá koma þrír til fjórar ofurmánar í röð af 12-13 mögulegum fullum tunglum. Fulla tunglið 31. ágúst verður þriðji ofurmáni ársins af fjórðum. Það gerðist 2. júlí og 1. ágúst og gerist aftur 28. september.
Ekkert er sérstaklega „ofur“ við mánann. Þó að ofurmáni sé sjö prósent breiðari og fimmtán prósent bjartari en fullt tungl er að meðaltali er munurinn varla sjáanlegur.
Nú vill svo til að ofurmáninn í vikunni er annað fulla tungl mánaðarins. Þegar tvö full tungl ber upp í sama mánuði er það seinna stundum nefnt blátt tungl. Það hefur þó ekkert með litbrigði tunglsins að gera.
Tunglið verður fullt á 29,5 daga fresti. Á um það bil tveggja og hálfs árs fresti verða þrettán full tungl á sama ári.