Lífið

Giftu sig tvisvar en halda nú hvort í sína áttina

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Joe Jonas og Sophie Turner hófu fyrst að stinga saman nefjum árið 2016.
Joe Jonas og Sophie Turner hófu fyrst að stinga saman nefjum árið 2016. EPA-EFE/NINA PROMMER

Hollywood hjónin Joe Jonas og Sophie Turner hafa á­kveðið að binda enda á fjögurra ára hjóna­band sitt. Frá þessu greina er­lendir slúður­miðlar.

Söngvarinn úr Jonas bræðrum og Game of Thrones leik­konan giftu sig ekki einu sinni, heldur tvisvar árið 2019. Fyrst í Las Vegas í Banda­ríkjunum og síðan í Frakk­landi.

Joe og Sophie fóru fyrst að stinga saman nefjum í gegnum Insta­gram árið 2016. Sophie hefur áður sagt frá því að þau hafi átt marga sam­eigin­lega vini. Joe hafi sent sér skila­boð upp úr þurru á miðlinum og hlutirnir strax farið að gerast.

Í um­fjöllun Peop­le kemur fram að hvorugt þeirra hafi tjáð sig um skilnaðinn opin­ber­lega. Söngvarinn og leik­konan trú­lofuðu sig árið 2017 en þau eiga tvær dætur, Willu Jonas sem fæddist árið 2020 og aðra litla stelpu sem fæddist í fyrra. Hjónin hafa aldrei gefið upp nafn stelpunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×