Þeir sem velji aukið frelsi í viðbótarlífeyrissparnaði beri aukinn kostnað
![Jón Finnbogason, framkvæmdastjóri Stefnis; Ólafur Páll Gunnarsson, framkvæmdastjóri Íslenska lífeyrissjóðsins og Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins.](https://www.visir.is/i/594107BDA782C218DC40C5DF1D065E25316D2D00C181199A1C34F4DF453914DC_713x0.jpg)
Framkvæmdastjórar lífeyrissjóða og sjóðastýringar fagna því að fjármála- og efnahagsráðherra sé að skoða leiðir til að auka valfrelsi fólks í viðbótarlífeyrissparnaði. Breytingar geta aukið áhuga fólks á fjárfestingum og lífeyrissparnaði. Sjóðfélagar sem vilja meira frelsi við að stýra sínum viðbótarsparnaði þurfa væntanlega að bera af því meiri kostnað en sjóðfélagar í hefðbundnum ávöxtunarleiðum.