Erlent

Sanna Marin hverfur af þingi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sanna Marin á ráðstefnu í London í sumar.
Sanna Marin á ráðstefnu í London í sumar. EPA-EFE/TOLGA AKMEN

Sanna Marin, fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands, hefur sagt af sér þingmennsku. Sanna, sem hefur setið á þingi fyrir Jafnaðarmannaflokkinn, hefur ráðið sig í starf hjá Stofnun Tony Blair.

Sanna sagði í viðtölum við finnska fjölmiðla í dag að hún hefði verið kjörin á þing vegna ákveðinna gilda sinna. Hún segist enn frekar geta þjónað kjósendum sínum í nýju hlutverki.

„Ég er auðmjúk og þakklát öllum þeim sem hafa kosið mig,“ sagði Sanna í dag. Hún taldi að fólk skildi ákvörðun sína að halda á önnur mið.

Þrátt fyrir góða kosningu Sönnu náði Jafnaðarmannaflokkurinn aðeins 43 þingmönnum í kosningunum í vor. Sambandsflokkurinn var kosningasigur og leiðir Petteri Orpo, formaður flokksins, nýja ríkisstjórn. Sanna sagðist strax eftir kosningarnar ekki vilja verða ráðherra, óháð stjórnarmyndunarviðræðum, heldur sitja sem óbreyttur þingmaður.

Þá hafa orðið fleiri breytingar í lífi þingmannsins fyrrverandi sem skildi við eiginmann sinn eftir nítján ára samband. Þá lét hún af embætti formanns Jafnaðarmannaflokksins á landsþingi flokksins um mánaðamótin. Antti Lindtmann, sem gegndi embætti þingflokksformanns Jafnaðarmanna á síðasta kjörtímabili er nýr formaður. Sanna bauð ekki fram krafta sína til endurkjörs.

Stofnun Tony Blair, kennd við breska forsætisráðherrann fyrrverandi og stjórnarformann stofnunarinnar, var komið á koppinn árið 2017 en markmið hennar er sagt vera að þróa pólitískar hugmyndir öllum þjóðum heims til hagsbóta. Stofnunin er staðsett í London og er óhagnaðardrifin.

„Markmið okkar er að hjálpa pólitískum leiðtogum um heim allan að breyta heiminum fyrir fólkið sitt. Sanna Marin veit nákvæmlega hvernig á að gera það,“ segir Tony Blair í yfirlýsingu.

Sanna hyggur ekki á flutning til London. Þó muni mikil ferðalög fylgja nýja starfinu og því hafi ekki verið unnt að sameina þau verkefni þingmennskunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×