Skoðun

Yfir­lýsing frá Anahitu Baba­ei og Elissu Bijou

Anahita Babaei og Elissa Bijou skrifa

Að næra og huga að heilbrigði fólks er okkur eðlislægt sem samborgarar og manneskjur. Við höfum mætt mikilli hlýju og velvild frá Íslendingum og erum innilega þakklátar og meyrar vegna þess.

Þó að það sé gott að sjá svo mikla fjölmiðlaumfjöllun og athygli á friðsamlegum mótmælaaðgerðum sem við stóðum fyrir á hvalveiðibátum Hval 8 og Hval 9, megum við til með að minna á aðal viðfangsefnið.

Markmið okkar með aðgerðunum var að varpa ljósi á hryllilegan raunveruleika hvalveiða Íslendinga. Eftir að við hættum okkar mótmælaaðgerðum héldu báðir bátar út til að veiða og hafa þegar þetta er skrifað drepið þrjár langreyðar. Þó okkur hafi tekist með mótmælaaðgerðum okkar að koma í veg fyrir að þeir drápu að minnsta kosti fjórar, tókst okkur því miður ekki að stöðva veiðarnar fyrir fullt og allt.

Það er strax ljóst að veiðiaðferðir við hvalveiðar hafa ekki batnað neitt, vitni við hvalstöðina segja að tvær af þrem langreyðum sem drepnar voru í gær voru skotnar tvisvar og það ber vott um löng og þjáningarfull dauðastríð.

Veiðiaðferðirnar eru enn jafn hræðilegar og þær voru þegar fagráð um velferð dýra gaf út yfirlýsingu sína í júní þar sem fram kom að veiðiaðferðir væru ómannúðlegar og brytu í bága við dýravelferðalög á Íslandi. En það var sú yfirlýsing sem Svandís Svavarsdóttir ráðherra notaði sem ástæðu fyrir því að hún gerði tímabundið hlé á veiðum í 2 mánuði.

Það er einnig ljóst á þessum fyrstu veiðum tímabilsins að Hvalur hf. getur hvorki fylgt lögum um veiðarnar né dýravelferðarlögum.

Móðir jörð og veðurguðirnir gera bátum Kristjáns Loftssonar erfitt fyrir með því að hræra í vindi og sjó. Það er mjög ólíklegt að honum takist að ná kvóta sínum vegna slæms veðurs og ferðalaga hvalanna frá Íslandsmiðum á þessum árstíma.

Það er einlæg von okkar að fólk sem fylgdist með okkur og sem lætur sér málefnið varða og vilja stöðva hvalveiðar og vernda þessar mikilfenglegu skepnur taki höndum saman og krefjist þess að stjórnvöld stöðvi þessar ónauðsynlegu og hryllilegu veiðar strax.

Ef þú vilt að hvalveiðar verði stöðvaðar þá getur þú skrifað til ráðherra í ríkisstjórn Íslands og/eða tjáð þig við færslur þeirra á samfélagsmiðlum, biðlaðu til þeirra að stöðva þessar veiðar.

Hér má einnig finna undirskrifarsöfnun gegn hvalveiðum.

Með þökk fyrir allt, stöðvum hvalveiðar núna!

Höfundar eru baráttukonur.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×