Bíó og sjónvarp

Volaða land fram­lag Ís­lands til Óskars­verð­launanna

Jón Þór Stefánsson skrifar
Elliott Crosset Hove sést hér í hlutverki danska prestins á ferðalagi sínu um Ísland.
Elliott Crosset Hove sést hér í hlutverki danska prestins á ferðalagi sínu um Ísland. Volaða land

Kvik­mynd­in Volaða land, eftir Hlyn Pálmason, verður fram­lag Íslands til Óskar­sverðlauna á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslensku kvik­mynda- og sjón­varps­aka­demí­unni.

Það var dómnefnd akademíunnar sem valdi myndina, en í henni sátu fulltrúar helstu fag­fé­laga ís­lenska kvik­myndaiðnaðar­ins, auk full­trúa kvik­mynda­húsa, gagn­rýn­enda og Kvik­mynda­miðstöðvar Íslands.

Myndin var frumsýnd á Cannes-kvikmyndahátíðinni í fyrra, en á Íslandi í marsá þessu ári. Hún hefur verið tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs og Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna.

Með aðalhlutverk í Volaða landi fara þau Elliott Crosset Hove, Ingvar E. Sigurðsson, Vic Carmen Sonne, Ída Mekkín Hlynsdóttir, Jacob Hauberg Lohmann, og Hilmar Guðjónsson. Það var Hlynur Pálmason sem skrifaði handrit og leikstýrði, en Maria von Hausswolff sá um kvikmyndatöku.

„Volaða Land er margslungið heilsteypt kvikmyndaverk sem ögrar áhorfandanum,“ segir í umsögn dómnefndarinnar.Volaða land

Sögusvið myndarinnar er Ísland undir lok nítjándu aldar. Ungur danskur prestur ferðast til Íslands í þeim tilgangi að reisa kirkju og ljósmynda íbúa eyjunnar. Sérvitur leiðsögumaður leiðir prestinn í gegnum landið á hestbaki ásamt hópi heimamanna.

„Volaða Land er margslungið heilsteypt kvikmyndaverk sem ögrar áhorfandanum með því að spyrja sammannlegra spurninga um tilvist og tilgang mannsins á hugrakkan og áleitin hátt,“ segir í umsögn dómnefndarinnar.

„Óvægin náttúruöflin hafa snemma áhrif á ferðalagið og samskipti „nýlenduherrans“ við íslenska sveitamanninn Ragnar ganga ekki sem skyldi vegna tungumálaerfiðleika og menningarmuns. Á ferðalaginu og í leit sinni að æðri mætti þarf presturinn að kljást við sjálfan sig andspænis náttúrunni. Löngun hans til yfirráða gagnvart henni verður honum að falli.“ segir dómnefndin jafnframt.

„Kvikmyndataka Mariu Von Hausswolff er stórbrotin og er hver rammi eins og listaverk. Náttúra Íslands í gegnum linsu hennar er í senn óvægin, framandi, ógnvekjandi, fráhrindandi og blaut en líka ægifögur og heillandi án þess að verða nokkurntímann væmin eða yfirdrifin.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.