Lífið

Sjaldséðar myndir af fjölskyldu Beyoncé

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Foreldrar Beyoncé fögnuðu með henni á afmælisdaginn 4. september.
Foreldrar Beyoncé fögnuðu með henni á afmælisdaginn 4. september. Beyoncé

Tónlistarkonan Beyoncé birti mynd af sér ásamt foreldrum sínum, Tinu og Mathew Knowles, í tilefni af 42 ára afmæli sínu á dögunum. Foreldrar hennar eru skilin og því sjaldséð að sjá mynd af þeim saman.

Myndin fangaði fallegt augnablik fjölskyldunnar þar sem foreldrarnir kyssa Beyoncé á sitthvora kinnina. 

Tina og Mathew voru gift í 31 ár og skildu árið 2011. 

Fleiri myndir af deginum má sjá í færslu tónlistarkonunnar á Instagram. Þar á meðal af tónlistarmanninum Jay Z, eiginmanni Beyoncé, þar sem hann klæddist stuttermabol með mynd af Beyoncé hálf naktri.

Jay Z og Beyoncé saman á afmælisdegi tónlistarkonunnar.Beyoncé

Silfurlitað þema

Líkt og sannri stórstjörnu sæmir voru skreytingar veislunnar afar glæsilegar. Upphafsstafur Beyoncé var þakinn hvítum blómum með hvítum rósum og diskó kúlum allt í kring. Afmæliskakan var einnig silfurlituð diskókúla, í stíl við klæðnað tónlistarkonunnar í veislunni.

Beyoncé virðist ánægð með afmæliskökuna sem er eins og diskókúla.Beyoncé
Flottar skreytingar.Beyoncé
Afmælisveisla Beyoncé stendur á bolnum.Beyoncé

Tengdar fréttir

Beyoncé óski ekki eftir nýjum klósett­setum

Móðir Beyoncé segir að ekkert sé til í orðrómi um að dóttir sín vilji fá sínar eigin klósettsetur þegar hún er á tónleikaferðalagi. Hugmyndin um að óska eftir sérstökum klósettsetum er að hennar sögn „of mikið.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.