Bale er einn af fjölmörgum fyrrverandi knattspyrnumönnum sem taka þátt á mótinu, enda hefur Walesverjinn aldrei reynt að leyna golfáhuga sínum. Þessi fyrrverandi leikmaður Tottenham og Real Madrid gekk meira að segja svo langt að segja að hann hefði meiri áhuga á að spila golf en fyrir spænska stórveldið er hann var leikmaður Madrídinga.
Bale lagði knattspyrnuskóna á hilluna í janúar á þessu ári og hefur hann því haft nokkra mánuði til að leggja enn meiri áherslu á golfið. Það kemur líklega fáum á óvart að Bale er nokkuð lunkinn golfari, en um leið og ráshóparnir voru birtir var forgjöf áhugamannanna sem taka þátt opinberuð.
Gareth Bale mætir til leiks með 0,5 í forgjöf, sem verður að teljast ansi gott. Með honum í ráshóp verður einnig fyrrverandi liðsfélagi hans hjá Tottenham, Jermaine Jenas, sem er með þrjá í forgjöf.
Þá eru fleiri fyrrverandi knattspyrnumenn sem taka þátt á mótinu. Þar má meðal annars nefna John Terry, fyrrverandi fyrirliða Chelsea og enska landsliðsins, sem er með 7,5 í forgjöf, ásamt Theo Walcott og Ben Foster. Walcott er með 10,2 í forgjöf og Foster átta.
Ráshópana í heild sinni má sjá með því að smella hér.