Enski boltinn

Ungstirni United hermdi eftir Salah

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Túnisar öpuðu eftir Mohamed Salah þegar þeir fögnuðu þriðja marki sínu gegn Egyptum.
Túnisar öpuðu eftir Mohamed Salah þegar þeir fögnuðu þriðja marki sínu gegn Egyptum. vísir/getty

Hannibal Mejbri, leikmaður Manchester United, virtist gera grín að Mohamed Salah þegar hann skoraði sigri Túnis á Egyptalandi.

Túnisar unnu Egypta, 1-3, í vináttulandsleik í Kairó í gær. Hamza Rafia gulltryggði sigur Túnis þegar hann skoraði í uppbótartíma.

Rafia og félagar hans fögnuðu markinu vel og innilega, meðal annars með því að fara í jógastöðu, svipaða og Salah gerir stundum þegar hann fagnar mörkum. Stellingin nefnist tré í jógafræðunum.

Meðal þeirra sem fögnuðu markinu var Hannibal sem er samningsbundinn United, erkifjendum Liverpool sem Salah leikur með. Hannibal lék sem lánsmaður með Birmingham City í ensku B-deildinni á síðasta tímabili en hefur ekki enn verið lánaður frá United í vetur.

Hannibal kom inn á þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum í gær. Salah spilaði allan tímann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×