Afkomuviðvörun Icelandair kom ekki á óvart eftir mikla hækkun á olíuverði
![Gengi Icelandair í Kauphöll lækkaði um rúmlega sex prósent í Kauphöllinni í um 1,8 milljarða viðskiptum.](https://www.visir.is/i/C65D565976FC1ED7D476EC28F6C975B726B5B031DAF216BE8C6F43052A7F98A9_713x0.jpg)
Ekki átti að koma á óvart að afkomuspá Icelandair yrði færði niður í ljósi þess hve mikið olíuverð hefur hækkað að undanförnu. Það er enn útlit fyrir mikla eftirspurn eftir flugi, segir hlutabréfagreinandi IFS í samtali við Innherja, en markaðsvirði Icelandair hefur lækkað um þriðjung á tveimur mánuðum.