Þór/KA sigraði Þrótt 2-0 í einni af þremur viðureignum dagsins í Bestu deild kvenna. Mörk gestanna skoruðu Sandra María Jessen og Jakobína Hjörvarsdóttir. Þróttur missti þar af gullnu tækifæri til að koma sér upp í 2. / 3. sæti deildarinnar. Þór/KA sitja í 5. sæti deildarinnar, aðeins tveimur stigum á eftir Þrótti.
Leikurinn var opinn og spennandi strax frá fyrstu mínútu. Liðin skiptust á stórsóknum í upphafi leiks og spiluðu flottan bolta fram á við. Þór/KA var heilt yfir hættulegri aðilinn og átti fleiri færi en Þróttarstelpur áttu mjög fína spretti inn á milli.
Norðankonur ógnuðu marki Þróttar ítrekað úr föstum leikatriðum, vel uppsett af æfingasvæðinu og góðar spyrnur sköpuðu mikinn usla í markteignum. En þrátt fyrir margar fínar sóknir og hættuleg marktækifæri fóru liðin markalaus inn í hálfleikinn.
Ísinn brotnaði svo strax í byrjun seinni hálfleiks, mjög einfalt og gott mark, hár bolti inn fyrir á Söndru Maríu sem kláraði færið í fjærhornið af miklu öryggi. Þróttur missti svolitla trú á verkefninu eftir að hafa lent undir, liðið hélt boltanum illa og var heldur óákveðið í sóknum sínum.
Það bætti svo ekki úr skák þegar Jakobína Hjörvarsdóttir skoraði annað mark Þór/KA beint úr aukaspyrnu af 45 metra færi. Hún ætlaði sér að gefa boltann fyrir en tókst á einhvern ótrúlegan hátt að setja hann í netið, Þrótturum til lítillar gleði.
Þór/KA þéttu svo raðirnar vel síðustu mínúturnar og bitlaus sóknarleikur Þróttar fann sér engin bjargráð, lokaniðurstaða 0-2 gestasigur.
Afhverju vann Þór/KA?
Þær voru frá fyrstu mínútu árasargjarnari aðilinn, beinskeyttar og hættulegar í boxinu. Gáfust ekkert upp þó illa gengi að finna markið, svo datt það loksins í seinni hálfleik og þær sigldu leiknum örugglega heim.
Hverjir stóðu upp úr?
Sandra María var frábær í fremstu línu Þór/KA, maður leiksins í dag. Skoraði gott mark og ógnaði sífellt þegar hún komst á boltann. Melissa Lowder átti sömuleiðis stórfínan leik í markinu, stýrði vörninni vel og át allar fyrirgjafir sem komu til hennar.
Hvað gekk illa?
Þrótturum skorti sjálfstraust í dag, sem er undarlegt miðað við hvað liðið hefur verið að spila vel. Urðu undir í baráttunni í dag og áttu ekki góðan leik varnarlega.
Hvað gerist næst?
Það eru tvær vikur í næsta leik, þar tekur Þróttur á móti Val og Þór/KA tekur á móti Stjörnunni. Báðir leikir fara fram laugardaginn 30. september, klukkan 14:00.
„Betri en Þróttur og áttum sigurinn skilið“

„Mér fannst leikurinn góður, svona heilt yfir. Þór/KA voru góðar í þessum leik, betri en Þróttur og áttum sigurinn skilið“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA, strax að leik loknum.
Fyrri hálfleikur var opinn og spennandi, þó Þór/KA hafi heilt yfir verið hættulegri aðilinn tóku Þróttarar þó nokkra góða spretti.
„Við vorum ofan á í fyrri hálfleik að mínu mati, ég er alveg harður á því. Fengum fjölda horna, vorum alltaf að spyrja spurninga og pressan okkar gekk mjög vel. Við settum þær í mikil vandræði í fyrri hálfleik og hefðum átt að skora, það var pínu svekkjandi að hafa ekki náð að komast yfir. Svo skerptum við bara á því sem við vorum að gera og þessi sigur varð sannfærandi.“
Þór/KA hafði fyrir þennan leik tapað síðustu þremur viðureignum sínum gegn Þrótti. Síðasti leikur liðanna var fyrir norðan en þar skellti Þróttur þeim 4-0 á heimavelli.
„Auðvitað sat það í okkur, þær eru búnar að vinna okkur alveg frá því í Lengjubikarnum og við vorum staðráðin í því að við ætluðum ekki að leyfa þeim að hirða allt saman gegn okkur. Við mættum þeim vængbrotnar síðast í deildinni, núna var þetta jafnara og gekk allt saman vel upp.“
Nú tekur við tæplega tveggja vikna landsleikjahlé, eftir það mætir Þór/KA Stjörnunni og FH í síðustu tveimur leikjum deildarinnar. Jóhann virtist ekki hrifinn af nýju fyrirkomulaginu þar sem mótið var framlengt og hafði áhyggjur af mögulegri snjókomu í þeim leikjum.
„Það eru margar spurningar í þessu. Það er langt í þetta, verður farið að snjóa? Verður maður byrjaður að skreyta? Það á margt eftir að gerast þangað til við hittum Stjörnuna næst og hvað þá FH inni í miðjum október einhvern tímann. Þær eru margar að fara í landsliðsverkefni og hvernig menn koma til baka úr því, það á bara eftir að koma í ljós. En mér líst alltaf vel á að fá Stjörnuna“sagði Jóhann léttur í bragði að lokum.