Lífið

Fékk að vera með á æfingu hjá Harlem Globetrotters

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Fréttamaður lék listir sínar sem þó voru ekki alveg jafn stórbrotnar og hjá liðsmönnum Heimshornaflakkaranna frá Harlem.
Fréttamaður lék listir sínar sem þó voru ekki alveg jafn stórbrotnar og hjá liðsmönnum Heimshornaflakkaranna frá Harlem. Stöð 2/Steingrímur Dúi

Eitt þekktasta körfuboltalið heims kemur til með að leika listir sínar í Laugardalshöll á morgun. Fréttamaður tók forskot á sæluna og fékk að vera með á æfingu. 

Körfuboltaliðið Harlem Globetrotters, eða Heimshornaflakkararnir frá Harlem, ber nafn með rentu. Liðið hyggur nú á Evróputúr með fjölda áfangastaða. Markmiðið er alltaf það sama, að skemmta áhorfendum með ótrúlegri leikni sem sést almennt ekki þegar lið etja kappi í körfubolta. 

Evrópuferðalagið hefst á Íslandi, nánar til tekið í Laugardalshöll á morgun. Fréttamaður fékk að líta inn á æfingu, þar sem einn leikmanna sagði veislu fram undan.

Angelo Spider Sharpless er einn leikmanna Harlem Globetrotters.Vísir/Steingrímur Dúi

„Eitt sem verður hægt að sjá eru troðslur frá miðlínu, alls konar brelluskot, langskot af pöllunum og mismunandi stöðum á vellinum. Svo er það hláturinn, grínið. Þetta er körfubolti þar sem allir geta komið og skemmt sér,“ sagði Angelo Spider Sharpless.

Að Evróputúr loknum er Norður-Ameríka næst.

„Við höldum bara áfram að ferðast og fá þúsund andlit til að brosa. Höldum bara áfram að hafa áhrif á heiminn.“

Það var ekki úr vegi að fréttamaður fengi að spreyta sig á vellinum, með æfingu sem þjálfari liðsins valdi af kostgæfni, með tilliti til getu hins fyrrnefnda. Hana má sjá hér að neðan.

Líkt og áður sagði hefst Evróputúr Heimshornaflakkaranna á morgun í Laugardalshöll. Þeir koma til með að spila tvo leiki, sem raunar mætti frekar kalla sýningar, sem selt er inn á í sitt hvoru lagi. 

Fyrri sýning hefst klukkan 14, en sú seinni klukkan 19. Í báðum tilfellum opnar húsið þegar klukkustund er í sýningu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×