Í frétt rannsóknarmiðilsins Pro Publica er haft eftir fólki sem starfaði við þessar samkomur að Thomas hafi verið fenginn til að mæta á ráðstefnurnar svo auðjöfrar væru líklegri til að sækja þær og til að gefa peninga í pólitíska sjóði bræðranna. Á ráðstefnunum snæddi Thomas með auðjöfrum sem veittu sjóðunum peninga.
Pro Publica hefur á undanförnum mánuðum fjallað nokkrum sinnum um Thomas á undanförnum mánuðum. Miðillinn hefur varpað ljósi á að auðjöfurinn Harlan Crow greiddi fyrir hann lúxusferðir í gegnum árin, greiddi skólagjöld fyrir barn sem Thomas ól upp og keypti af honum fasteignir.
Thomas hafði ekkert gefið upp um þetta í hagsmunaskráningu sína.
Þá hafa fjölmiðlar vestanhafs sagt frá því að forsvarsmaður íhaldssamtaka faldi tuga þúsund dala greiðslur til eiginkonu Thomas fyrir ráðgjafastörf.
Sjá einnig: Lét leyna greiðslum til eiginkonu hæstaréttardómara
Það var í gegnum Harlan Crow sem Thomas kynntist Koch-bræðrunum.
Koch-bræðurnir hétu Charles og David Koch en David lést árið 2019. Þeir hafa haft áhrif innan Repúblikanaflokksins og hafa haft gífurleg áhrif á stjórnmálin í Bandaríkjunum og bandarískt samfélag á undanförnum áratugum. Charles Koch er einn af auðugustu mönnum heims og safnar hann peningum frá öðrum auðjöfrum fyrir áhrifaveldið sem hann og bróðir hans byggðu.
Koch-bræðurnir og ýmis samtök þeirra hafa í gegnum árin komið mörgum málum fyrir Hæstarétt Bandaríkjanna og þar á meðal er mál sem tekið verður fyrir á þessu ári. Það mál snýr að því hvort alríkisstofnanir hafi völd til að setja reglur á bandarísk fyrirtæki á sviðum eins og umhverfisvernd, kjaramálum og neytendamálum.
Þetta veldi bræðranna inniheldur pólitískar aðgerðanefndir, eða Super Pacs, og hagsmunasamtök og hefur það gengið undir nafninu Koch network. Bræðurnir áttu stóran hluta í uppgöngu tehreyfingarinnar svokölluðu innan Repúblikanaflokksins fyrir nokkrum árum og hafa þeir í gegnum árin barist fyrir því að fækka opinberum reglugerðum á fyrirtæki.
Í síðustu kosningum varði Koch network rúmum 65 milljónum dala í að styðja frambjóðendur Repúblikanaflokksins á ýmsum sviðum.
Árið 2021 safnaði Koch network minnst sjö hundruð milljónum dala í sjóði sína og vinna rúmlega þúsund manns fyrir samtökin og sjóðina sem mynda Koch network. Blaðamenn Pro Publica segir að mörg þessara samtaka og sjóða deili húsnæði í Arlington í Virgínu, starfsfólki og peningum.
Veldi bræðranna og þeir sem hafa stutt þá vilja að Hæstiréttur snúi við áratuga gömlu fordæmi um að stofnanir hafi þetta vald. Thomas sjálfur var mótfallinn því að snúa fordæminu en hefur skipt um skoðun á undanförnum árum. Þetta mál verður tekið fyrir hæstarétt á næstunni.
Fyrir tveimur árum fór annað mál frá Koch network fyrir hæstarétt. Það snerist um það hvort forsvarsmenn hagsmunasamtaka megi leyna því hverjir gefa þeim peninga. Thomas greiddi þá atkvæði með hinum dómurunum sem voru skipaðir í embætti af Repúblikönum og fór atkvæðagreiðslan 6-3.
Kostar minnst hundrað þúsund dali
Koch network heldur fjáröflunarráðstefnu í Kaliforníu á hverju ári. Þar koma auðugir menn saman, ræða mikilvægustu málin í huga þeirra og gefa peninga í sjóði Koch network. Til að fá að sækja ráðstefnu þarf að veita þessum sjóðum minnst hundrað þúsund dali á ári.
Þeir sem gefa hærri upphæðir fá sérstaka meðferð en árið 2018 fengu þeir til að mynda að hitta Thomas. Vitað er að hann var einnig gestur á ráðstefnu sem haldin var fyrir árið 2010.
Starfsmenn sem hafa unnið við þessar ráðstefnur segja mikla leynd hvíla á viðburðinum. Heilu hótelin séu leigð undir ráðstefnurnar og öll skjöl séu rifin að þegar ráðstefnurnar klárast.
Ráða sér að mestu sjálfir
Bandarískir hæstaréttardómarar ráða sér að mestu leyti sjálfir þegar kemur að hagsmunaárekstrum, öfugt við dómara á lægri stigum dómskerfis Bandaríkjanna. Þar þurfa dómarar að fylgja ströngum reglum sem ætlað er að koma í veg fyrir spillingu.
Í yfirlýsingu til Pro Publica segir að Thomas hafi ekki komið að fjáröflun Koch network. Það sé ekkert óeðlilegt við að dómarar mæti á viðburði og haldi ræður eða kynni bækur.
Fyrrverandi alríkisdómari, sem skipaður var af George W. Bush, segir það sláandi að Thomas hafi sótt þessar ráðstefnur með auðjöfrum. John E. Jones III segir að ef hann gert það, þá hefði hann strax fengið skilaboð um að ferðin yrði rannsökuð.
„Það sem þið sjáið er hægur gangur að ósiðlegu framferði. Gerðu það ef þú kemst upp með það,“ sagði Jones.