Frá þessu greinir Morgunblaðið.
Veiðar Hvals 8 voru stöðvaðar á dögunum eftir að veiðimenn hæfðu langreyð „utan tilgreinds marksvæðiðs“ með þeim afleiðingum að dauðastríð dýrsins varð lengra en ella. Um það bil 30 mínútur liðu þar til dýrið var skotið aftur eftir misheppnaða fyrstu tilraun.
Veiðar Hvals hf. hafa verið mikið í fréttum frá því þær hófust að nýju en um helgina var greint frá því að nær fullvaxta kálfur hefði verið dreginn úr langreyði sem var drepin á föstudag. Í nýrri reglugerð matvælaráðherra um veiðarnar segir að ekki megi skjóta hvali sem kálfar fylgja. Ekki er fjallað um kefldar kýr.
„Það er ekkert nýtt við það að kelfdar hvalkýr veiðist líkt og gerðist í síðustu viku, það gerist á hverri einustu vertíð. Þetta verður aldrei öðruvísi ef menn ætla að stunda hvalveiðar,“ segir Kristján í samtali við Morgunblaðið.
Kristján segir um 40 þúsund langreyðar við landið og helmingur þeirra væntanlega kýr. Það hafi ekki nokkur áhrif á viðkomu stofnsins þótt nokkrar kefldar kýr séu drepnar. Þá hafi fóstrin verið rannsökuð af sérfræðingum og þannig nýst í vísindaskyni.