Sport

Dag­skráin í dag: Subway-deild kvenna hefst, Man Utd, Loka­sóknin og meira til

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Bruno Fernandes og félagar eru í beinni.
Bruno Fernandes og félagar eru í beinni. Vísir/Getty Images

Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Subway-deild kvenna í körfubolta hefst, Manchester United spilar í enska deildarbikarnum og strákarnir í Lokasókninni fara yfir allt sem gerðist í NFL um helgina.

Stöð 2 Sport

Klukkan 19.05 hefst útsending frá Grindavík þar sem heimakonur taka á móti Fjölni í 1. umferð Subway-deild karla.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 18.35 hefst útsending frá Ítalíu þar sem Juventus og Lecce mætast í Serie A, úrvalsdeildinni karla í knattspyrnu.

Klukkan 20.45 er Lokasóknin á dagskrá þar sem farið verður yfir allt það helsta sem gerðist í NFL-deildinni um helgina en af nægu er að taka.

Vodafone Sport

Klukkan 18.50 hefst útsending frá Old Trafford í Manchester þar sem heimamenn í Man United mæta Crystal Palace í enska deildarbikarnum.

Stöð 2 E-Sport

Klukkan 19.15 er Ljósleiðaradeildin á dagskrá. Þar er að venju keppt í tölvuleiknum CS:GO.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×