Rafmagn kom aftur á rétt eftir klukkan 19 eftir að því hafði slegið út í um eina og hálfa klukkustund. Rafmagnsleysið hafði víðtæk áhrif á starfsemi fyrirtækja.
Starfsfólk pizzastaðarins Olifia þurfti að vísa gestum frá vegna rafmagnsleysis og náðu ekki að halda starfseminni gangandi. Þá þurftu starfsmenn að hringja í gesti sem eiga bókað borð og afbóka.
Trausti Kristjánsson, framkvæmdastjóri staðarins, sagðist hafa mestar áhyggjur af hráefnum í kæli. Hann átti vonaðist að sjálfsögðu til að rafmagnsleysi yrði ekki langvarandi því annars sæu þau fram á mikið tjón. Kveikt var á kertum inni á staðnum og þeir gestir sem voru búnir að fá mat áður en rafmagnsleysið skall á létu fara vel um sig.
Á veitingastaðnum Krúsku var kassakerfið úti vegna rafmagnsleysis. Þar var viðskiptavinum boðið upp á að millifæra en þeir voru vegna rafmagnsleysisins. Að sögn Steinars Þórs, eiganda staðarins, mætti einn viðskiptavinur lukkulegur með seðla og gat því keypt kjúkling.
Himinlifandi með fría drykki
Allt mótttökukerfið á Reykjavík Lights hótelinu á Suðurlandsbraut lá niðri vegna rafmagnsleysis. Starfsfólk skráði gesti sem mættu og yfirgáfu hótelið á blað þess í stað.
Rakel og Marta í móttökunni sögðu að gestir hótelsins hafi verið himinlifandi þar sem þeim hafi verið boðið fríir drykkir á barnum vegna ástandsins. Gestir komust inn á herbergi sín enda eru aðgangskort tengd rafhlöðum.
Ekki var hægt að nota lyftur hótelsins, eðli málsins samkvæmt. Hópur sem var á leiðinni átti gistingu á 6. hæð og sögðust þær Rakel og Marta hafa mestar áhyggjur af því að koma töskum þeirra alla leiðina upp á 6. hæð fari rafmagnið kæmist ekki fljótlega aftur á.
Fréttatími Stöðvar 2 fór ekki í loftið á réttum tíma og rafmagnsleysið hafði áhrif á útsendingar Stöðvar 2, Bylgjunnar og útvarpsstöðva sem hafa starfsemi á Suðurlandsbraut.