Lífið

Ástin kulnuð hjá Svölu og Lexa Blaze

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Svala Björgvins er eins vinsælasta tónlistarkona landsins.
Svala Björgvins er eins vinsælasta tónlistarkona landsins. Aðsend

Tónlistarkonan Svala Björgvinsdóttir og Alexander Egholm Alexandersson eru hætt saman eftir rúmlega árs samband.

Neistarnir hafa slokknað á milli þeirra og til marks um það hefur Svala fjarlægt langflestar myndir af Alexander, oftast nefndur Lexi Blaze, af Instagram-síðu sinni. 

Parið byrjaði saman eftir samkvæmi í Garðabæ í fyrra sumar. Landsmenn hafa sýnt sambandi Svölu (46) og Lexa (25) mikinn áhuga undanfarið ár. 

Nóg er um að vera hjá Svölu sem tók á dögunum þátt í herferð Bleiku slaufunnar.

Þá verður Svala í aðalhlutverki á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar, föður hennar, þegar nær dregur jólum. 


Tengdar fréttir

Frægir fundu ástina árið 2022

Á hverju ári greinir Vísir reglulega frá nýjum pörum og þá sérstaklega kemur að þekktum Íslendingum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×