Löggiltar þýðingar fyrir fyrirtæki og einstaklinga Diction 5. október 2023 14:39 Diction býður upp á löggiltar þýðingar fyrir bæði fyrirtæki og einstaklinga. Skjölin eru þýdd úr eða yfir á íslensku og afhent með stimpli og undirskrift. Afhendingartími er á bilinu ein til tvær vikur. Í ýmsum tilvikum getur þurft að skila inn löggiltri þýðingu svo sem skírnarvottorði, prófskírteini, skjölum í tengslum við ýmiskonar styrki og ársskýrslum, svo eitthvað sé nefnt. Diction, löggiltur þýðandi, býður þessa þjónustu og tryggir fagleg vinnubrögð. Allir þýðendur Diction hafa lokið löggildingu til að taka að sér þýðingar á skjölum sem hafa réttarlegt gildi. Þá vinnur Diction eingöngu með þýðendum sem þýða á sitt móðurmál og eru sérfræðingar í viðkomandi skjalategund. Hvernig gengur ferlið fyrir sig? Senda þarf þau skjöl sem á að þýða til Diction og fær viðkomandi tilboð í verkið sent rafrænt. Ekki eru gefin verðtilboð í síma. Diction tekur tvo virka daga í að útbúa tilboð en í flestum tilvikum tekur tilboðsgerðin styttri tíma. Taki viðkomandi ekki tilboðinu er skjölunum eytt úr gagnagrunni Diction. Lágmarksverð fyrir löggilta þýðingu er 29.990 krónur, fyrir eina blaðsíðu. Viðskiptavinur fær rafræna útgáfu af þýðingunni til yfirlestrar áður en lokaskjalið er stimplað og sent viðtakanda í pósti. Hvert skjal er prófarkalesið af öðrum aðila með sömu sérfræðiþekkingu til að tryggja nákvæma þýðingu. Afhendingartíminn á löggiltum þýðingum, sem er 1 - 2 blaðsíður, er yfirleitt á bilinu 1 - 2 vikur. Ef það liggur á að fá þýðinguna í hendurnar á styttri tíma er hægt að hafa samband við Diction og fara fram á forgangsþjónustu. Ef þörf er á forgangsþjónustu bætist við auka gjald þar sem öll önnur verkefni eru lögð til hliðar á meðan viðkomandi þýðing er afgreidd. Lögbókandavottun og Apostille Í langflestum tilfellum er löggilt þýðing nægileg staðfesting á lögmæti þýðingarinnar. Móttakandi skjalsins getur þó krafist þess að fá enn frekari staðfestingu eða vottun. Mælt er með því spyrja móttakanda nákvæmlega hvaða kröfur séu gerðar til þýðingarinnar. Ef móttakandi skjalsins gerir kröfu um að þýðingin sé lögbókandavottuð (notarius publicus) hjá sýslumanni þarf sá sem óskar staðfestingarinnar að framvísa skilríkjum og undirrita skjalið, eða kannast við undirskrift sína að fulltrúa sýslumanns viðstöddum. Lögbókandavottun jafngildir vottun tveggja manna um þá athöfn eða staðreynd sem hún tekur til. Í sumum tilvikum krefst löggilt þýðing staðfestingar frá utanríkisráðuneytinu, eða svokallaðar Apostille stimplunar. Þetta á þó aðeins við um skjöl sem stimpluð hafa verið af íslensku stjórnvaldi og hafa verið lögbókandavottuð (notarius publicus) hjá sýslumanni. Hafðu samband Sendu skjalið í gegnum formið á síðunni til að fá upplýsingar um afhendingartíma og verð fyrir þýðinguna. Einnig er hægt að senda fyrirspurn í gegnum formið á heimasíðunni eða í gegnum tölvupóst á info@diction.is til að fá tilboð, þér að kostnaðarlausu. Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Neytendur Fleiri fréttir Slepptu biðröðinni og bókaðu dekkjaskiptin á nesdekk.is Hvað gefa vinnustaðir í jólagjöf? Fyrirtækjagjafir á Vísi Met mæting í Klinkuboð Ert þú á leið í framkvæmdir og veist ekki hvar þú átt að byrja? Októberfest í Bílheimum á laugardaginn Spennandi tækifæri í Mosfellsbæ Sagði einhver fasteign á hjólum? Volvo EX90 reynsluakstur Enginn þarf að vera giftur lánunum sínum út lánstímann Ótrúlegar viðtökur á stuttum tíma Greiðsluáskorun Sinna verktöku hjá Wolt samhliða námi og öðrum störfum Smáhýsin frá BYKO eru vinsæll valkostur fyrir hvaða tilefni sem er Langar meira í 911 T-Hybrid en bæði lungun sín Sjá meira
Sendu skjalið í gegnum formið á síðunni til að fá upplýsingar um afhendingartíma og verð fyrir þýðinguna. Einnig er hægt að senda fyrirspurn í gegnum formið á heimasíðunni eða í gegnum tölvupóst á info@diction.is til að fá tilboð, þér að kostnaðarlausu.
Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Neytendur Fleiri fréttir Slepptu biðröðinni og bókaðu dekkjaskiptin á nesdekk.is Hvað gefa vinnustaðir í jólagjöf? Fyrirtækjagjafir á Vísi Met mæting í Klinkuboð Ert þú á leið í framkvæmdir og veist ekki hvar þú átt að byrja? Októberfest í Bílheimum á laugardaginn Spennandi tækifæri í Mosfellsbæ Sagði einhver fasteign á hjólum? Volvo EX90 reynsluakstur Enginn þarf að vera giftur lánunum sínum út lánstímann Ótrúlegar viðtökur á stuttum tíma Greiðsluáskorun Sinna verktöku hjá Wolt samhliða námi og öðrum störfum Smáhýsin frá BYKO eru vinsæll valkostur fyrir hvaða tilefni sem er Langar meira í 911 T-Hybrid en bæði lungun sín Sjá meira