Lífið

Októberspá Siggu Kling: Þinn er mátturinn og svo kemur dýrðin

Sigga Kling skrifar
ljon

Elsku Ljónið mitt, ég segi í stjörnuspánni minni þegar ég er að tala við önnur merki, hreyfðu þig úr stað því þú ert ekki tré. Núna eru skilaboðin til þín elsku ljón, þú skalt hugsa eins og þú sért tré, setja ræturnar niður.

  • Ljónið er frá 23. júlí til 22. ágúst.

Hlustaðu á þinn eigin hjartslátt, þá byrjar hann að slá í takt við það líf sem þú vilt leika þér í. Þú ert svo stór orka og svo mikil manneskja að þú fyllir Hörpuna þó að þú sért einn á ferð. Núna þarftu að finna indjánann í þér, leita til þess að hlusta á gamla músík, hlusta á vindinn og telja upp á hverjum degi hvað þú getur verið þakklátur fyrir. Þannig byrjar þú daginn og þú brosir helst í spegilinn. 

Það er yfirleitt spegill á klósettinu og þar byrja fyrstu mínútur dagsins. Það er að eflast einfaldleikinn sem er svo fallegur, það er að eflast trúin á sjálfan sig, og akkurat á þessum tíma máttu ekki nota slævandi efni né vín. 

Það er svo margt að fara illa í þig vegna tíðninnar í kringum þig. Virkjaðu þetta sterka skap til þess að færa og ýta við fjöllum. Tileinkaðu þér að gefa frá þér það sem þú notar ekki, setja út græðandi og uppbyggjandi orð til allra sem þú getur. 

Klippa: Októberspá Siggu Kling - Ljónið

Það eru svo margir með erfiðleika í lífsorkunni sinni á þessum tímum, svo í hvert skipti sem þú fleygir fræi af fallegu orði í hjarta einhvers og jafnvel klappar þeim á öxlina í leiðinni, í þessari svakalegu sérkennilegu tíðni sem veröldin er að gefa, þá gerist það að það sem þú gefur af fallegum orðum og veraldlegum eigum margfaldast í kringum þig. 

Ef þú ert í ástarsambandi sem er að éta allt frá þér og gefur hvorki orð né atlæti nema þegar þeirri manneskju vantar það, þá skalltu klippa á þann streng, þakka í huganum fyrir samskiptin og sjá manneskjuna labba í burtu frá þér. Þannig sendir þú hana út úr heilabúinu á þér. 

Þú ert ekki fylgjandi, þú átt ekki að fylgja fólki sem er bara í ruglinu. Núna getur þú breytt öllu á nokkrum mínútum. Þessi orka gæti hafa komið inn til þín í september, skoðaðu það vel og sjáðu að þinn er máturinn og svo kemur dýrðin.

Knús og kossar

Sigga Kling

  • Daniel Radcliffe, leikari, 23. júlí
  • Sigríður Beinteinsdóttir, söngkona, 24. júlí
  • Sandra Bullock, leikkona, 26. júlí
  • Birgitta Haukdal Brynjarsdóttir, söngkona, 28. júlí
  • Meghan Markle, leikkona, 4. ágúst
  • Joe Rogan, hlaðvarpsstjórnandi, 11. ágúst
  • Halldóra Geirharðsdóttir, leikkona, 12. ágúst
  • Madonna, söngkona, 16. ágúst





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.