Lífið

Inga Lind mætti í einkapartý

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Inga Lind mætti í einkasamkvæmi á Röntgen í gær þar sem eigendur buðu útvöldum til haustfögnuðar.
Inga Lind mætti í einkasamkvæmi á Röntgen í gær þar sem eigendur buðu útvöldum til haustfögnuðar.

Það var heldur betur góð stemmning á Hverfisgötunni í gær þar sem eigendur Röntgen buðu útvöldum til haustfögnuðar. Staðurinn var lokaður almenningi á milli 17 og 19 á meðan gestir nutu drykkja og matar auk tónlistar.

Inga Lind Karlsdóttir fjölmiðlakona var mætt á svæðið og sömuleiðis vinkonurnar Selma Björnsdóttir söngkona og Björk Eiðsdóttir, aðstoðarmaður Björgólfs Thors Björgólfssonar. Ólöf Skaftadóttir fjölmiðlakona var í góðu stuði eins og eigendurnir Ásgeir Guðmundsson og Steinþór Helgi Arnsteinsson. Þá var Sigrún Helga Lund tölfræðingur á svæðinu en hún vakti mikla athygli sumarið 2020 þegar hún leysti upp hópslagsmál á Laugaveginum.

Ruben Pollock gítarleikari Kaleo og Kristinn Vilbergsson athafnamaður voru líka í góðum gír. Vinkonurnar Salka Sól Eyfeld söngkona og Eygló Gísladóttir ljósmyndari skemmtu sér konunglega.

Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn sáu um ljúfa tóna. Veitingastaðurinn Hosiló er í kjallara hússins og var boðið upp á sýnishorn af nýjum dýrindis barseðli frá kokkunum Atla og Núma á kjallarastaðnum. Vínseðillinn hefur líka tekið breytingum og fengu gestir að kynnast honum.

Þá var hulunni svipt af sérpöntuðu verki listamannsins Þrándar Þórarinssonar sem að skreyta efri hluta staðarins.

Inga Lind var svo mætt eldfersk í Bítið á Bylgjunni í morgun þar sem þau Ásgeir Kolbeinsson, sem hefur látið til sín taka í veitingarekstri í miðbæ Reykjavíkur um árabil, ræddu fréttir vikunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.