Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Ekki fylgja nánari upplýsingar tilkynningunni en ljóst er að tilefnið er ákvörðun Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að segja af sér embætti fjármála-og efnahagsráðherra.
Halda spilunum þétt að sér
Eins og fram hefur komið funda þingflokkar ríkisstjórnarflokkanna þriggja á Þingvöllum í dag. Forystumenn flokkanna hafa sagt að um sé að ræða vinnufund sem ekki tengist ákvörðun Bjarna.
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, sagði í morgun við fréttastofu að vel komi til greina að Bjarni taki annan ráðherrastól.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, vildi ekki gefa upp í dag hvort ákvarðanir hafi verið teknar um hrókeringar í ríkisstjórn. Hún segir að slíkt verði kynnt á morgun.
Telur þú og er það ljóst á þessu stigi að Bjarni Benediktsson fari í ráðherrastól?
„Þetta eins og ég segi kemur allt í ljós á morgun á ríkisráðsfundi. Þessi ríkisstjórnarfundur snerist nú um ýmis önnur mál, þannig að við vorum ekki að ræða þau hér.“
Formlega hefur verið boðað til ríkisráðsfundar á morgun. Hann fer fram á Bessastöðum klukkan 14:00 og má gera ráð fyrir því að nýr fjármála-og efnahagsráðherra verði þar mættur.
Fréttin hefur verið uppfærð.