Beinþynning - hvað get ég gert til að fyrirbyggja brot? Sigríður Björnsdóttir og Ragnar Freyr Ingvarsson skrifa 20. október 2023 08:00 Á hverju ári verða um 1800-2000 beinþynningarbrot, þar af 300 mjaðmabrot1 Afleiðingarnar eru alvarlegar - skerðing lífsgæða þeirra sem brotna og í alvarlegustu brotunum, mjaðmabrotum, er dánartíðni verulega aukin. Þetta er jafnframt geysilega kostnaðarsamt fyrir samfélagið. Í nýlegri franskri rannsókn var tekinn saman heildarkostnaður við beinþynningarbrot yfir 18 mánaða tímabil. Kostnaður við eitt mjaðmarbrot var sem samsvarar 3,6 milljónum íslenskra króna og samfallsbrot í hrygg kostuðu 2,2 milljónir íslenskra króna2. Beinþynning er algengur sjúkdómur sem einkennist af minnkuðum beinmassa og rýrnun beina sem veldur því að bein brotna mun auðveldar. Algengustu brotin eru úlnliðsbrot, samfallsbrot á hrygg og mjaðmabrot. Hætta á beinþynningu eykst með aldrinum og eru konur í meiri hættu á að fá beinþynningu en karlar. Þá auka ýmsir sjúkdómar, eins og bólgusjúkdómar, ýmsir innkirtlasjúkdómar og krabbamein algengi beinþynningar. Beinþynning gefur engin einkenni og því hefur hún verið kölluð þögull sjúkdómur. Sá sem fyrir henni verður finnur ekki fyrir henni fyrr en við brot, sem getur orðið við lítinn áverka eins og við fall á jafnsléttu, eða að upp kemur slæmur bakverkur eftir að hafa borið þungan poka. Byrgja skal brunninn áður en barnið dettur ofan í hann. Því er mikilvægt að finna þá sem eru í mestri áhættu að brotna og fyrirbyggja að þeir fái brot. Beinþynningu er hægt að greina með sértækri röntgenrannsókn þar sem þéttni beinsins er mæld í hrygg og mjöðmum. Rannsóknin tekur skamman tíma, ekki nema um 20 mínútur og er með öllu skaðlaus. Þá er einnig er hægt að framkvæma áhættumat þar sem unnt er að spá fyrir um líkurnar á því að brotna næstu 10 árin. Ástæður beinþynningar skýrast einna helst af erfðum og umhverfinu. Notkun sykurstera hefur skaðleg áhrif á beinin og minnkar beinþéttnina. Hreyfingarleysi, reykingar og óhófleg áfengisneysla hefur líka skaðleg áhrif á beinin. Það er margt sem maður getur gert sjálfur. Mikilvægt er að huga vandlega að næringunni, takmarka áfengisneyslu og hætta reykingum ef við ái. Góð hugmynd er að taka inn lýsi eða D vítamíntöflur og fá nægilegt kalk úr fæðunni. Regluleg hreyfing er mikilvæg fyrir vöðva og bein. Öll hreyfing er af hinu góða. Styrktar- og jafnvægisæfingar eru mjög mikilvægar til að styrkja vöðva og bein og hindra byltur. Einnig er mikilvægt að huga að byltuvörnum heima fyrir, forðast lausar snúrur og mottur, hafa góða lýsingu innan dyra, vera í góðum skóm og nota brodda þegar hálka er úti á veturna. Fyrir þá sem eru með beingisnun og áhættuþætti eða beinþynningu kemur lyfjameðferð stundum til álita. Mikilvægt er að ræða slíkt við lækninn sinn. Beinbrot hafa í flestum tilvikum alvarlegar afleiðingar fyrir þann sem brotnar, löng lega á sjúkrastofnunum ásamt skertri hreyfigetu, fjarvera úr vinnu og félagslífi leiðir til verri lífsgæða.Nýleg íslensk rannsókn sýndi að nærri þriðjungur þeirra sem mjaðmabrotna látast innan árs vegna fylgikvilla brotanna, en það er áttföld dánartíðni jafnaldra3 . Í dag 20. okt er alþjóðlegur dagur beinþynningar. Beinþynning er algeng, oft vangreind og afleiðingar geta verið alvarlegar. Það er því til mikils að vinna ef við getum fækkað beinþynningarbrotum á Íslandi. Höfundar eru sérfræðilæknar í Heilsuklasanum. Sigríður Björnsdóttir innkirtla- og efnaskiptalæknir og Ragnar Freyr Ingvarsson, gigtarlæknir og framkvæmdastjóri Beinstyrks. Heimildir: 1. Sigurðsson G, Siggeirsdóttir K, Jónsson BY, Mogensen B, Guðmundsson EF, Aspelund T, et al. Yfirlitsgrein. Úr gögnum Hjartaverndar: Nokkur atriði um faraldsfræði og áhættumat beinbrota á Íslandi. Læknablaðið 2017; 103: 423-8. 2. Coassy A, Svedbom A, Locrelle H, Chapurlat R, Cortet B, Fardellone P, Orcel P, Roux C, Borgström F, Kanis JA, Thomas T.Osteoporos Int. 2022 Mar;33(3):625-635. doi: 10.1007/s00198-021-06189-7. Epub 2021 Oct 12.PMID: 34642813 3. Magnusson KA, Gunnarsson B, Sigurðsson GH, Mogensen B, Ólafsson Y, Kárason S. Meðferð og afdrif sjúklinga með mjaðmabrot. Læknablaðið 2016; 102: 119-23. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Loftslagsávinningur Coda Terminal er gífurlegur Sigurður Loftur Thorlacius Skoðun Skaðinn í leyndri meðferð á heimilum Matthildur Björnsdóttir Skoðun Að verða fórnarlamb íslenskra skattyfirvalda Arnar Pálsson Skoðun „Eru ekki allir pínu einhverfir í dag?“ Andrea Ólafsdóttir Skoðun Bóluefni eða veirur Ágúst Kvaran Skoðun Tilgangur atvinnurekstrarbanns Lárus Sigurður Lárusson Skoðun Betri leið til að velja keppendur inn á Ólympíuleika Pawel Bartoszek Skoðun Af glyðrugangi eftirlitsstofnana Ester Hilmarsdóttir Skoðun 3.200 aumingjar (mín skoðun) Ole Anton Bieltvedt Skoðun Um vanda stúlkna í skólum Ragnar Þór Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun „Eru ekki allir pínu einhverfir í dag?“ Andrea Ólafsdóttir skrifar Skoðun Betri leið til að velja keppendur inn á Ólympíuleika Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Tilgangur atvinnurekstrarbanns Lárus Sigurður Lárusson skrifar Skoðun Að verða fórnarlamb íslenskra skattyfirvalda Arnar Pálsson skrifar Skoðun Loftslagsávinningur Coda Terminal er gífurlegur Sigurður Loftur Thorlacius skrifar Skoðun Bóluefni eða veirur Ágúst Kvaran skrifar Skoðun Skaðinn í leyndri meðferð á heimilum Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Af glyðrugangi eftirlitsstofnana Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Linnulaus þjáning íbúa á Gaza Hrafnhildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Munurinn á þjóðerniskennd versus sálernis þarfar upplifun Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Verða rangfærslur að sannleika, ef þær eru endurteknar nógu oft!? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Svifhrifavaldar Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Forseti ÍSÍ hvattur til að hefja tiltektina í eigin starfsemi Sigurður G. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvernig og hvenær en ekki hvort Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Það er víst hægt að semja um aðildarskilmála! Mörg dæmi sanna það! Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Orðatónar: Aukinn orðaforði og lesskilningur barna með íslenskri tónlist Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Tilfinningalegur athyglisbrestur og heilbrigt tilfinningalíf Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Reglurnar eru óumsemjanlegar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun 3.200 aumingjar (mín skoðun) Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Ber endurhæfing ávöxt? skrifar Skoðun Heimur á heljarþröm skrifar Skoðun Foreldrar á 4. vaktinni Sara Rós Kristinsdóttir,Lóa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Norður-Kórea er víða Ingvar Smári Birgisson skrifar Skoðun Það getur verið gott að búa til steind Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Uppskeruhátíð öldrunarfræða á Norðurlöndum Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Gullverðlaun í mengun Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Gen og glæpir Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun 10 tæknilegir yfirburðir rafbíla Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Um vanda stúlkna í skólum Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Land, borgir og samgöngur Guðjón Sigurbjartsson skrifar Sjá meira
Skoðun Verða rangfærslur að sannleika, ef þær eru endurteknar nógu oft!? Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Forseti ÍSÍ hvattur til að hefja tiltektina í eigin starfsemi Sigurður G. Guðjónsson skrifar
Skoðun Það er víst hægt að semja um aðildarskilmála! Mörg dæmi sanna það! Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Orðatónar: Aukinn orðaforði og lesskilningur barna með íslenskri tónlist Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar