Innlent

Skerða þjónustu heilsu­gæslunnar vegna kvenna­­verk­­falls

Árni Sæberg skrifar
Sigríður Dóra Magnúsdóttir er forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Sigríður Dóra Magnúsdóttir er forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Vísir/Sigurjón

Reikna má með að starfsemi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins verði verulega skert þriðjudaginn 24. október næstkomandi vegna boðaðs kvennaverkfalls. Heilsugæslustöðvar verða opnar en munu eingöngu sinna bráðaerindum þennan dag.

Þetta segir í tilkynningu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. 

Fjölmörg samtök launafólks, kvenna og hinsegin fólks hafa boðað til kvennaverkfalls þriðjudaginn 24. október. Konur og kvár sem það geta eru hvött til að leggja niður launuð og ólaunuð störf. Í tilkynningu segir að af um eitt þúsund starfsmönnum heilsugæslunnar séu um 84 prósent konur. Reikna megi með því að verulegur hluti starfsfólks heilsugæslunnar muni leggja niður störf þennan dag.

Stefna öryggi og heilsu fólks ekki í hættu

Þá segir að komið verði til móts við starfsfólk vegna boðaðs kvennaverkfalls eins og hægt er, en Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins muni tryggja að nauðsynlegri þjónustu verði haldið gangandi svo öryggi fólks eða heilsu sé ekki stefnt í hættu. 

Heilsugæslustöðvar verði opnar en muni eingöngu sinna bráðum erindum og smáslysum auk þess sem nauðsynleg lyf verði endurnýjuð. Verkefnum sem ekki teljast bráð verði ekki sinnt þennan dag.

Draga ekki af launum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins muni leita leiða til að konur og kvár sem ekki geta tekið þátt í verkfallinu geti með öðrum hætti sýnt samstöðu með kröfum dagsins. Í samræmi við tilmæli frá kjara- og mannauðssýslunni muni heilsugæslan ekki draga frá launum þeirra sem taka þátt í kvennaverkfallinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×