Lífið

Há­punktur Bleiku slaufunnar á Bleika deginum í dag

Lovísa Arnardóttir skrifar
Bleikur dagur var haldinn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja nýverið og tóku fjölmargir þátt.
Bleikur dagur var haldinn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja nýverið og tóku fjölmargir þátt.

Bleiki dagurinn er í dag. Krabbameinsfélagið hvetur alla til að sýna konum sem hafa þurft að glíma við krabbamein stuðning með því að taka þátt. Hægt er að klæðast bleiku, halda bleikt boð eða borða eitthvað bleikt. 

Hápunktur Bleiku slaufunnar, árlegs árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélagsins, er Bleiki dagurinn sem er í dag. Í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu segir að dagurinn hafi notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár og sé haldinn hátíðlegur um land allt.

Á Bleika daginn er hefð fyrir því að bera Bleiku slaufuna, klæðast bleiku, halda bleik boð, gæða sér á bleiku bakkelsi og lýsa skammdegið bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein upplifi stuðning og samstöðu.

Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, segir að þótt Bleiki dagurinn sé tilefni til þess að gleðjast með vinnufélögunum, vinum og fjölskyldu, þá risti hann líka dýpra.

„Það heyrum við á hverjum einasta degi hjá félaginu. Hvað þessi bleiki stuðningur skiptir miklu máli fyrir allar þær konur sem eru að glíma við krabbamein í dag, eða hafa háð þá glímu, fjölskyldur þeirra og fjölskyldur þeirra sem hafa misst sínar konur úr krabbameinum. Það skiptir máli að þið vitið að þið eruð að gera eitthvað sem skiptir máli.“

Þakklát að geta borið slaufuna

Hrefna Eyþórsdóttir, formaður og starfsmaður Krabbameinsfélags Austfjarða, sagði Krabbameinsfélaginu sögu sína í tengslum við átakið í ár og ræddi í því samhengi um mikilvægi þessa bleika stuðnings.

„Ég er rosa þakklát að geta borið slaufuna. Það merkir auðvitað það að ég læknaðist af mínum sjúkdómi og ég ber hana líka til heiðurs þeim sem hafa tapað baráttunni. Það er svo gaman að sjá alla aðra bera hana, því mér finnst það vera fyrir mig og alla hina og mér finnst það sýna það bakland sem við eigum í samfélaginu,“ sagði Hrefna er horfa má viðtalið í YouTube hér að neðan.

Krabbameinsfélagið tekur fagnandi á móti bleiku myndefni í gegnum bleikaslaufan@krabb.is eða með merkingum á samfélagsmiðlum, til að hægt sé að deila stemningunni sem víðast.


Tengdar fréttir

Tími til að skreppa í skimun!

Í tilefni að bleikum október og árlegri vitundarvakningu um brjóstakrabbamein stendur Brjóstamiðstöð Landspítala fyrir átaksverkefninu „skrepp í skimun“ í samstarfi við Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins og Félag kvenna í atvinnulífinu. 

Verum bleik – fyrir okkur öll!

Í dag hefst sala Bleiku slaufunnar og þar með árleg fjáröflun og vitundarvakning Krabbameinsfélagsins um krabbamein hjá konum.

Söng um Draumaprinsinn og giftist sínum

Einar Stefánsson, markaðs- og kynningarstjóri hjá Píeta samtökunum, trommuleikari Hatara og gít­ar­leik­ari Vakar gekk að eiga Sólbjörtu Sigurðardóttur flugfreyju, dansara og leiklistarnema við hátíðlega athöfn um liðna helgi í Vestmannaeyjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.