Íslenski boltinn

Guðmundur Tyrfingsson keyrir frá Selfossi og í Árbæinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðmundur Tyrfingsson í úrslitaleik Mjólkurbikarsins fyrir tveimur árum þar sem Víkingur vann ÍA, 3-0.
Guðmundur Tyrfingsson í úrslitaleik Mjólkurbikarsins fyrir tveimur árum þar sem Víkingur vann ÍA, 3-0. vísir/hulda margrét

Fótboltamaðurinn Guðmundur Tyrfingsson er genginn í raðir Fylkis frá Selfossi.

Guðmundur var fyrirliði Selfoss sem féll úr Lengjudeildinni á síðasta tímabili. Hann skoraði átta mörk í 21 deildarleik í sumar.

Hinn tvítugi Guðmundur er uppalinn hjá Selfossi en hefur einnig leikið með ÍA. Hann lék 29 leiki í efstu deild með Skagamönnum og skoraði eitt mark. 

Alls hefur Guðmundur leikið 102 leiki í deild og bikar á Íslandi og skorað 23 mörk. Þá hefur hann leikið 26 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Fylkir endaði í 8. sæti Bestu deildarinnar á síðasta tímabili. Fylkismenn voru í fallbaráttu allt tímabilið en björguðu sér með því að vinna síðustu tvo leiki sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×